dánaraðstoð.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hún vakti þar máls á mikilvægum málum. Ég vil byrja á því að koma inn á að svo gott sem samhljóða þingsályktunartillaga hafi einmitt komið frá hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur. En ég tel það að leggja fram efnislega svipað frumvarp á sama tíma og til staðar er þingsályktunartillaga sé einungis til þess fallið að styðja við það mál. Við séum þá að fleyta umræðunni áfram, við séum að koma því saman að hér ríki samhugur um það að við viljum lögleiða dánaraðstoð. Hvaða leið er best til þess fallin, hvort sem það er ráðuneytið eða löggjafinn, þá er ég á þeirri skoðun að hér getum við vel tekið afstöðu til frumvarps sem Alþingi Íslendinga.
Hv. þingmaður spurði út í þrýsting frá aðstandendum á sjúklinga, þá væntanlega varðandi það að óska eftir dánaraðstoð fremur en að óska ekki eftir dánaraðstoð. Ég áttaði mig ekki á því hvort spurt var en auðvitað er gott og blessað ef ákvörðunin sem sjúklingurinn er að taka í samráði við sína heilbrigðisstarfsmenn sé tekin í sem mestri sátt við aðstandendur. En þarna er þó einungis verið að tala um rétt sjúklings. Svo er einnig kveðið á um það að læknir þurfi að vera viss um að ákvörðun sé tekin eða ósk sé sett fram af heilum hug og af eigin vilja. Þá er einnig kveðið á um lágmarkstíma sem þarf að líða á milli þess sem ósk er borin upp og dánaraðstoð er veitt, sem ætti einnig að gefa nægan tíma fyrir viðkomandi til að draga ósk sína til baka eða ganga úr skugga um að viðkomandi sé ekki beittur þrýstingi. Mjög svipað er þá hægt að segja ef spurningin átti að vera um þrýsting til að óska ekki eftir dánaraðstoð og vera hér lengur.