154. löggjafarþing — 82. fundur,  7. mars 2024.

dánaraðstoð.

771. mál
[13:06]
Horfa

Flm. (Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir) (V) (andsvar):

Forseti. Umrædd þingsályktunartillaga um dánaraðstoð hefur verið lögð fyrir þingið og legið í þinginu í nokkur ár og er ekki enn komin til nefndar. Ég lít svo á að með því að leggja fram frumvarp um þetta séum við einungis að styrkja stöðu þessa mikilvæga máls sama hvaðan það kemur. Þetta mál er mér hjartans mál. Hér er ég að láta mína sannfæringu, mitt hjarta og mína pólitík ráða för í því hvað ég geri í þessu mikilvæga embætti. Fyrir mér skiptir máli að þetta mál hljóti framgang og ég tel það vera mjög mikilvægt að þetta mál komist til nefndar sem fyrst og því er ég að leggja fram þetta frumvarp sem styrkir bara þennan mikilvæga málstað.