dánaraðstoð.
Hæstv. forseti. Ég kom hérna upp í andsvar áðan og sagði frá því að ég styddi lögleiðingu dánaraðstoðar. Ég er það en aftur á móti er ég ekki viss um að þetta sé tímabært. Ástæðan fyrir því er aðallega viðhorfskönnunin sem var gerð á síðasta ári og ég nefndi það að vissu leyti hérna í andsvari mínu áðan. En staðan er sem sagt sú að þriðjungur lækna er alfarið á móti þessu og helmingur lækna er hlynntur þessu og miðað við viðhorfsbreytinguna sem hefur orðið frá því áður þá er ljóst að viðhorf lækna er að verða jákvæðara. Því tel ég að þetta sé vinna sem væri langbest að vinna með læknum þannig að skýrt sé að hægt sé að gera þetta í góðu samstarfi við þá. Ég held að jákvæðni þeirra muni bara aukast í garð þessa máls. Ég held að það sé ekkert mjög langt í það.
Ég er búin að funda mikið um þetta mál og hef einmitt fundað með Lífsvirðingu sem er félag um dánaraðstoð og hefur kynnt þetta mál mjög mikið og ég hef kynnt mér stöðuna í öðrum löndum. Það er verið að skoða ýmsar leiðir til að vera með dánaraðstoð. Þetta er gert með því að sjúklingar innbyrða sjálfir lyf, læknar gefa þeim lyf annaðhvort sjálfir eða sjúklingar fara í apótek. Þeir hafa einnig verið að fá lyf í æð og það eru margs konar leiðir sem hafa komið fram í þessu.
Varðandi vinnuna í nefndinni þá eru kannski nokkrir hlutir í frumvarpinu sem væri gott að skoða betur. Þetta er vel unnið frumvarp og flott en það eru nokkrir hlutir sem mætti kanna aðeins betur eins og varðandi kaflann um framkvæmd dánaraðstoðar. Þar kemur fram að sjúklingur hefur rétt til að draga ósk sína til baka, hvenær sem er og með hvaða hætti sem er. Ég held að það væri gott fyrir nefndina að skoða hvað fælist í því, með hvaða hætti sem er. Þýðir það að sjúklinginn geti sent SMS eða hvað? Það þýddi þá, eins og kom fram áðan, að það gætu nú verið fjölskyldumeðlimir sem gætu þrýst á svona eða dregið til baka í óþökk sjúklingsins. Ég held að það þyrfti að tryggja það alveg að það sé sjúklingurinn sjálfur sem óskar eftir því að þetta verði dregið til baka.
Einnig kemur fram í 7. gr. frumvarpsins í sama kafla að læknir má veita dánaraðstoð á heilbrigðisstofnunum, dvalarheimilum og hjúkrunarheimilum og á heimili sjúklings. Mér finnst þetta gefa smá til kynna að þetta séu einungis eldri einstaklingar sem sækist eftir þessu. Það getur líka verið að yngri einstaklingar vilji kannski vera á heimili foreldra sinna eða á öðrum stöðum þannig að það þyrfti kannski að hafa þetta opnara.
Svo er það eftirlit með dánaraðstoð, sem kom líka fram í andsvörum áðan hjá öðrum þingmönnum. Það á að vera fimm manna eftirlitsnefnd sem annast eftirlit og það stendur að kostnaður af störfum nefndarinnar, þar með talið þóknun nefndarmanna, greiðist úr ríkissjóði og skal þóknunin vera ákveðin af ráðherra. Þetta er mál sem ég tel að þyrfti að fara í kostnaðarmat ef þessu verður fylgt eftir, áður en það er samþykkt af þinginu.
Ég þakka hv. þm. Katrínu Sigríði J. Steingrímsdóttur fyrir þetta mál og óska til hamingju með þetta fyrsta mál hennar á þingi. Eins og kom fram hjá mér áðan þá styð ég þetta mál, tel það ekki vera tímabært en ég held að það sé mjög stutt í að það komi að því.