dánaraðstoð.
Hæstv. forseti. Varðandi það að þetta sé ekki tímabært og þá skoðun mína þá finnst mér aðallega eðlilegt að framkvæmdaraðilar, læknarnir, og samtök þeirra séu opinberlega fylgjandi dánaraðstoð áður en við lögfestum hana hér inni. Ástæðan fyrir því að ég held að þetta muni gerast er sú að kannanir sýna að þetta er á uppleið, viðhorfið er á uppleið en samt sem áður hefur Læknafélagið ekki gefið það út að það styðji þetta mál. Ég tel að það væri mjög gott að heilbrigðisráðherra fari í þá vinnu með þeim að skoða þetta vel og ræði við lækna á öllu landinu um framkvæmdina á þessu, því að þótt ég sjálf styðji þetta er ég ekki framkvæmdaraðili og get ekki sett mig í þeirra spor. En ég vona innilega að Læknafélagið muni taka þetta upp og verði jákvætt í garð þessa máls, en á meðan þau eru ekki búin að gefa það út þá tel ég þetta ekki tímabært.