154. löggjafarþing — 82. fundur,  7. mars 2024.

dánaraðstoð.

771. mál
[13:17]
Horfa

Flm. (Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir) (V) (andsvar):

Forseti. Ég spyr hv. þingmann: Veit hann hvort Læknafélagið hafi opinberlega verið búið að gefa það út að það styddi þungunarrof þegar það var lögleitt hér á landi árið 1975? Ef svo er, fínt, en meginþorri málsins hlýtur þó að vera sá að samviskufrelsi þeirra trompi ákvörðun um hvort Læknafélagið sem slíkt styðji frumvarpið. Ég fagna því ef Læknafélagið ályktar svo að það styðji lögleiðingu dánaraðstoðar núna en Læknafélagið talar ekki fyrir hönd allra lækna. Það eru læknar sem væru mögulega til í að veita dánaraðstoð en spurningin hér snýst líka um það að opna á þennan frelsismöguleika. Það er það sem skiptir máli, að við erum að opna á þann möguleika fyrir lækna að veita dánaraðstoð og fyrir sjúklinga að óska eftir dánaraðstoð. Ég hlakka til að sjá umsögn Læknafélagsins inni í velferðarnefnd þegar þetta mál verður lagt fyrir hana.