dánaraðstoð.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu. Það er rétt að deila því með ykkur að vinkona mín, sem ég kynntist fyrir mörgum árum, lenti í veikindum, skilnaði, þunglyndi og viðvarandi vanlíðan. Fyrir nokkrum árum tók hún þá ákvörðun að binda enda á líf sitt. Hún skrifaði opið bréf til allra ættingja og allra sem létu sig varða líf hennar og væntanlegan dauða og útskýrði hvers vegna hún kysi ekki að lifa lífinu lengur, taldi upp nokkrar meginástæður, þakkaði samferðamönnum, fjölskyldu og vinum og ákvað að binda enda á líf sitt. Þetta fannst mér þegar ég frétti af þessu bera vott um ákveðna reisn, sjálfstæði, djörfung og dug. Ólíkt því dæmigerða pukri sem hefur einkennt svona lagað þá var þetta opið ferli og laust við alla blygðun og skömm. Ég held að öllum í fjölskyldunni hafi liðið betur með þetta. Þetta var hennar ákvörðun. Þetta snýst fyrst og fremst um ákvörðun einstaklingsins sem ræður yfir lífi sínu og „eventúelt“ dauða. Hvað sem læknum, hjúkrunarfólki, prestum eða félagsfræðingum kann að finnast þá er enginn að skylda þá til neins hér. Þeim er skv. 4. gr. frumvarpsins heimilt að færast undan því að gera þetta og í þessu tilfelli t.d. sem ég nefndi þurfti engan lækni. Þetta var bara gert af eigin rammleik eins og fólk hefur verið að gera í gegnum aldirnar. Þess vegna held ég að þetta frumvarp sé af hinu góða. Þetta mun aflétta þeim óþægindum sem þessu hafa fylgt og þeir læknar sem kæra sig um að taka slík skref gera það. Hinum er frjálst að gera það ekki.