154. löggjafarþing — 82. fundur,  7. mars 2024.

dánaraðstoð.

771. mál
[13:22]
Horfa

Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég held að við þekkjum öll dæmi um einstaklinga sem myndu vilja nýta sér dánaraðstoð. Sjálf þekki ég til nokkurra dæma. Þetta er að vissu leyti mannúðarsjónarmið, að færa fólki völdin. Síðan hefur það náttúrulega á ákveðnum tímapunkti ekki lengur völd yfir sínum eigin líkama, yfir sínum eigin huga. Það veit að það er að þróast í þá átt og mun verða þannig. Margir vilja ekki vera á þeim stað og vilja því geta tekið svona ákvörðun um sinn eigin dauða með fjölskyldu sinni, með sálfræðingum og með læknum. Þess vegna er dánaraðstoð að miklu leyti mjög mikilvæg fyrir þessa einstaklinga og marga sem hafa verið að glíma við sjúkdóma og erfiðar aðstæður og vilja taka svona ákvörðun. Og við vitum að það eru margir sem taka svona ákvarðanir án nokkurrar aðkomu lækna eða annarra og því fylgir oft mikil sorg. Því getur að vissu leyti hjálpað einstaklingum mjög mikið að hafa þessi tækifæri. Ástæðan fyrir því að ég nefndi hér áðan að ég telji að þetta sé ekki tímabært fyrr en eftir aðkomu Læknafélagsins er vegna þess að læknar eru í þessu frumvarpi taldir vera framkvæmdaraðilar. Það er verið að setja það í lög að þeir komi að þessu. Því þykir mér eðlilegt að þeir þurfi að gefa jákvæða umsögn við svona mál.