dánaraðstoð.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sín viðbrögð, sína skoðun í málinu sem henni er að sjálfsögðu frjálst að hafa. Þegar um líf einstaklings er að ræða þá snýst þetta í þessu samhengi kannski fyrst og fremst um heimild hans og rétt til þess að fá afgreiddan þann lyfjaskammt sem til þyrfti. Kannski mætti víkka út frumvarpsdrögin og gera öðrum það mögulegt, kannski sálfræðingum, að skrifa upp á slíkt að fenginni fullvissu um að viðkomandi einstaklingur væri mjög einbeittur og viðvarandi í ákvörðun sinni. Með fullri virðingu fyrir læknastéttinni, sem er ætlað fyrst og fremst að halda í okkur lífinu; ef nóg er lifað skal það vera einstaklingsins sjálfs að meta, óháð öllum starfsstéttum og embættismönnum íslenska ríkisins.