154. löggjafarþing — 82. fundur,  7. mars 2024.

framkvæmd EES-samningsins.

581. mál
[13:50]
Horfa

utanríkisráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Já, ég er þeirrar skoðanir að þessi dómur Hæstaréttar sé mikilvægt innlegg inn í umræðuna um bókun 35. Til að svara spurningunni þá er ég með þingmál á þingmálaskrá minni sem kemur í kjölfarið á skýrslu sem ég lagði fyrir þingið. Nú er þetta þannig vaxið að mér fannst ástæða til þess að taka því nokkuð alvarlega þegar hér á þingi fyrir ári síðan komu fram raddir sem sögðu málið klaga upp á stjórnarskrá og ekki standast íslensku stjórnarskrána. Að það skyldi geta orðið jafn djúpstæður ágreiningur hér í þinginu og birtist okkur í þeirri umræðu kom mér á óvart. Skrif um málið komu mér líka talsvert á óvart og mögulega var það vegna þess að umræðan hafði ekki verið undirbúin með fullnægjandi hætti. Nú höfum við þennan nýja dóm Hæstaréttar sem frekara innlegg og skýrslan sem ég lagði fyrir þingið um bókun 35 var einmitt til þess hugsuð að kalla fram þessi ólíku sjónarmið. Ég verð þó að segja að umræðan um bókun 35 sem fór fram í þinginu um daginn varð mér nokkur vonbrigði. Mér fannst koma fram sjónarmið í þeirri umræðu sem mér fannst vera afskaplega illa rökstudd og langt frá mínum skilningi á hinni lagalegu stöðu vegna þess að við erum eins og hv. þingmaður er að benda á í raun og veru enn þá að tala um bókun 35 sem er 30 ára gamalt fyrirbæri. Við erum ekki í þeirri stöðu að taka einhverjar nýjar ákvarðanir heldur erum við að bregðast við athugasemdum um það hvernig við höfum fylgt eftir bókun (Forseti hringir.) sem þá var gerð. Þannig er ég þeirrar skoðunar að rökin fyrir því að klára málið séu góð á þessu þingi.