154. löggjafarþing — 82. fundur,  7. mars 2024.

framkvæmd EES-samningsins.

581. mál
[13:52]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég fagna bara síðustu setningu hæstv. ráðherra því að það er mjög brýnt að mínu mati eftir umfjöllun nefndarinnar í gær um skýrsluna að við klárum þetta mál á þessu þingi, ekki til að verja stjórnvöld heldur til að verja almenning. Svo má líka velta því fyrir sér, miðað við þær upplýsingar sem við fengum í gær, að ef við gerum ekkert þá er alveg ljóst að EFTA-dómstóllinn mun, í ljósi dómafordæma gagnvart Liechtenstein og fleirum, dæma Íslandi í óhag. Þá gerist það sem ég vil alls ekki að gerist, að svigrúm okkar hér á þinginu til að bregðast við með ákveðnum hætti verður minna. Það verður takmarkaðra. Þess vegna vil ég hvetja hæstv. ráðherra til þess að stíga fram. Ég veit að þetta mál er erfitt innan búðar innan Sjálfstæðisflokksins en ég trúi því og treysti því að hann sýni forystu í þessu máli í þágu íslensks almennings og í þágu þess að við stöndum raunverulega vörð um þennan mikilvægasta viðskiptasamning sem Ísland hefur gert.