154. löggjafarþing — 82. fundur,  7. mars 2024.

framkvæmd EES-samningsins.

581. mál
[14:01]
Horfa

utanríkisráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Hér er komið inn á allnokkur mál sem eru hvert fyrir sig risamál. Fyrst aðeins um hagsmunagæsluna. Það er rétt að tilskipanir og reglugerðir eru margar og vaxandi og í því felst alveg sjálfstæð áskorun. Það sem við ættum að veita sérstaka athygli í því er hversu mjög það er að færast í vöxt að gerðir frá Evrópusambandinu séu í formi reglugerða sem ætlast er til að séu innleiddar eins og þær koma fyrir án undantekninga. Krafan um að innleiðingin sé eins á öllu Evrópska efnahagssvæðinu gefur engan sveigjanleika fyrir sérstakar aðstæður. Þetta er mjög vaxandi frá Evrópusambandinu. Ef það væri þannig að íslenska krónan hefði kostað okkur alla þessa milljarða, hundruða milljarða, sem oft er fleygt fram í umræðunni þegar menn bera saman einhvern vaxtakostnað þjóða, þá byggjum við ekki hér við einn mesta kaupmátt í Evrópu og hefðum hann vaxandi undanfarin ár langt fram úr því sem er að gerast annars staðar. Taka þarf heildarmyndina með í reikninginn. (Forseti hringir.) Gallinn við að vera í sameiginlegri mynt getur verið verulegur. Sumir vilja gefast upp á því að innleiða aga í opinber fjármál og í vinnumarkaðsmál á Íslandi og taka bara inn harðan húsbónda sem væri harður gjaldmiðill, en ég vil halda því fram að við eigum að gera þetta af eigin rammleik.