154. löggjafarþing — 82. fundur,  7. mars 2024.

framkvæmd EES-samningsins.

581. mál
[14:03]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir skýrsluna. Ég var því miður ekki viðstaddur hina sérstöku umræðu um bókun 35, ég hefði gjarnan viljað vera það. Ég er með spurningu til hæstv. utanríkisráðherra sem er þessi: Hvernig getur það staðist stjórnarskrá að setja almenn lög, reglur, um það að ákveðin lög með ákveðinn uppruna gangi framar öðrum lögum, þ.e. lög með uppruna í Brussel, lög með uppruna í bókun 35 og lög sem eiga uppruna sinn í tilskipunum og reglum ESB sem eru innleiddar á Íslandi og gerð að lögum? Hvernig getur það staðist stjórnarskrá að þannig lög verði samþykkt á Alþingi Íslendinga og bindi hendur löggjafans til framtíðar, að ein almenn lög gangi framar öðrum almennum lögum? Hvernig stenst það stjórnarskrá?

Ég er með margar aðrar spurningar fyrir hæstv. utanríkisráðherra og þá kemur spurning númer tvö. Núna hefur EES-samningurinn, sem er 30 ára gamall, verið uppfærður. Evrópusambandið hefur farið í svokallaðar sáttmálabreytingar. Það var farið í Maastricht-sáttmálann rétt fyrir gildistöku innri markaðar EES-samningsins, það var farið í Amsterdam-sáttmálann 1999, Nice-sáttmálann 2003 og Lissabon-sáttmálann 2009 þar sem orkusamband Evrópu á uppruna sinn í 194. gr. Öll ESB-ríkin þurftu að samþykkja þessar sáttmálabreytingar, öll ríkin þurftu að samþykkja þessa sáttmála, m.a. í þjóðaratkvæðagreiðslum. Næsta sáttmálabreyting mun verða strategísk. Hvernig stendur á því að Ísland, EFTA-megin, fékk ekki að samþykkja þessar breytingar sáttmálamegin? Verður ekki gerð krafa um það við næstu sáttmálabreytingu að Ísland samþykki þá sáttmálabreytingu sem verið er að gera á innri markaðinum m.a.? Það er algjörlega óþolandi að við séum að sogast inn í samrunaþróun Evrópusambandsins með þessum hætti, með þessum sáttmálabreytingum, án þess að hafa nokkuð um málið að segja.