154. löggjafarþing — 82. fundur,  7. mars 2024.

framkvæmd EES-samningsins.

581. mál
[14:07]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Því miður höfum við bara eina eða tvær mínútur. Mig langar að lesa aðeins upp úr greinargerð um bókun 35 fyrir 30 árum. Þar kemur fram að EB-ríkin kröfðust þess að EFTA-ríkin samþykktu forgang EES-reglna þar sem réttarstaða einstaklinga yrði annars ekki tryggð með sama hætti í EFTA-ríkjunum og EB-ríkjunum fyrir dómi. Með leyfi forseta:

„EFTA-ríkin féllust ekki á þessa kröfu EB þar sem ljóst var að í þeim EFTA-ríkjum þar sem þjóðarétturinn hefur ekki þegar forgang fyrir landslögum, mundi forgangsregla EB-réttarins kalla á framsal löggjafarvalds.“

Framsal löggjafarvaldsins. Þess vegna var bókun 35 ekki sett í lög. Þetta er þjóðréttarleg skuldbinding í dag gagnvart Evrópusambandinu. Þetta er ekki inni í lögum og lausnin var 3. gr. laga um EES-samninginn. Það er alveg kristaltært að ef þetta verður sett í lög mun það ganga gegn löggjafarvaldinu, um framsal löggjafarvalds, og ganga gegn stjórnarskránni. (Forseti hringir.) En ég vænti þess að hæstv. utanríkisráðherra svari þessu um sáttmálabreytingarnar og kannski gæti hann útskýrt það fyrir mér varðandi verndarhyggjuna sem er núna að fara að koma upp innan EES.