154. löggjafarþing — 82. fundur,  7. mars 2024.

framkvæmd EES-samningsins.

581. mál
[14:26]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir ræðuna. Við ræðum hér mjög mikilvægt og stórt mál sem er framkvæmd EES-samningsins. Við höfum tekið þessa umræðu áður sem snýr að öryggismálum Evrópusambandsins og NATO. Við þekkjum það að það eru 23 af 27 aðildarríkjum Evrópusambandsins í NATO og um 20% fjárveitinga til NATO koma frá þessum 23 sambandsríkjum landsins þar fyrir utan. Hagsmunir Íslands varðandi varnar- og öryggismálin eru þannig klárlega innan NATO og geta Evrópusambandsins í dag, sem er náttúrlega mikið rædd, er takmörkuð til að standast þessi mál. Við þekkjum það líka að Bandaríkjamenn eru með um 50% af öllum fjárveitingum sem ganga til varnar- og öryggismála tengdum NATO og 55% síðast þegar það er skoðað, þannig að hin ríkin utan Evrópusambandsins, m.a. Bretland, Kanada, Noregur, Tyrkland, eru þá væntanlega með einhver 25%, meira en allt Evrópusambandið.

Við höfum tekið þessa umræðu áður en mér finnst bara mikilvægt að koma því á framfæri að við þurfum að gæta þess að NATO er gríðarlega mikilvægt okkur og Evrópusambandsumræða um það sem tengist varnar- og öryggismálum er kannski ekki í augnablikinu mjög mikilvæg í þessu samhengi sem snýr að Íslandi og EES-samningnum og síðan því að verða aðili að Evrópusambandinu, það er ekki varnar- og öryggismál að mínu viti. Ég vildi rétt koma inn á þetta.