framkvæmd EES-samningsins.
Virðulegi forseti. Ég vil bara þakka hv. þingmanni fyrir hans störf líka þegar kemur að NATO. Ég var með honum í NATO-nefndinni og við áttum mjög gott samstarf þar. Ég er eindregið sammála honum hvað það varðar að aðild okkar að Atlantshafsbandalaginu var fyrsta farsæla skrefið, alþjóðaskrefið, sem við Íslendingar stigum og hefur, ekki spurning, aukið öryggi okkar lands og ekki síst tryggt öryggi borgaranna. Við erum sammála um það. Ég vona þó að Sjálfstæðisflokkurinn — eins og systurflokkur Sjálfstæðisflokksins í Noregi og ýmsir aðrir flokkar og stjórnmálafólk og blaðafólk eru að draga fram verðum við að vera síkvik núna. Við verðum að ná að endurmeta stöðu Noregs í þessum heimi þegar Úkraína liggur undir árás og þá um leið Evrópa. Úkraína er ekki bara að verja sig, Úkraínumenn eru að verja Evrópu, lýðræði, frelsi og það kallar á alls konar varnir. Það kallar ekki bara á gömlu hefðbundnu varnirnar og það er þar sem við sjáum Evrópusambandsríkin og Evrópu taka stærri þátt. Ég vil einfaldlega að það mat fari fram. Ég held að við eigum ekki að vera hrædd við það. Við getum alltaf farið í deilu um það; inni eða úti í Evrópusambandinu, og við erum ósammála um það. En við megum ekki bara segja fyrir fram: Það breytist ekki neitt. Það er allt að breytast og ég tala nú ekki um ef Trump verður forseti, sem við vonum auðvitað ekki. Ég tel það vera á ábyrgð okkar sem hér erum og ekki síst okkar sem höfum verið að sinna varnar- og öryggismálum, sem erum alltaf að tala um varnar- og öryggismál — og ég vil hrósa hv. þingmanni fyrir það — að vera með augun opin og ekki bara það heldur fara í kerfisbundið mat á því hvar hagsmunum Íslands er best borgið, ekki bara út frá efnahagslegum og félagslegum forsendum heldur líka út frá öryggissjónarmiðum. Það er sama hvað fólk andsnúið Evrópusambandinu segir, það er líka margt að breytast innan sambandsins og við verðum að taka mið af því.