154. löggjafarþing — 82. fundur,  7. mars 2024.

framkvæmd EES-samningsins.

581. mál
[14:30]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég taldi það kannski upp áðan en nú veit ég ekki hvort Svíar séu búnir að skrifa undir í Washington DC sem er að gerast í dag og er stór og mikill dagur fyrir NATO, þannig að ég hafði svo sem ekki með í upptalningunni hvaða ríki yrðu eftir utan NATO innan Evrópusambandsins. En þetta er stór og mikilvægur dagur eins og hefur komið fram og gríðarlegar breytingar í varnar- og öryggismálum í Evrópu. Ég hef sjálfur setið ráðstefnu innan NATO-þingsins þar sem Finnar og Svíar lýstu því yfir að út frá öryggismálum væri Evrópusambandið ekki jafn mikilvægt og NATO. Ég vildi bara rétt koma því að hér. Ég veit að hv. þingmaður sem er í andsvari hér þarf að drífa sig i önnur erindi en ég vildi halda þessum punkti til haga, enda er það mikilvægt, sem fulltrúar Svíar og Finna hafa lýst opinberlega yfir á fundum erlendis, að það er lykilatriði fyrir varnir og öryggi Finnlands og Svíþjóðar að komast inn í Atlantshafsbandalagið, enda komu umsóknir þeirra fram örfáum vikum eftir innrás Rússa í Úkraínu. Það er rétt að halda því fullkomlega til haga í þessari stærri umræðu fyrst verið er að tengja þetta við þessa umræðu eins og oft áður hér í þinginu.