154. löggjafarþing — 82. fundur,  7. mars 2024.

framkvæmd EES-samningsins.

581. mál
[14:46]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F):

Frú forseti. Þetta er afskaplega gagnleg og góð umræða sem á sér stað hér í þingsal um skýrslu hæstv. utanríkisráðherra um EES-samninginn. Eins og fram hefur komið þá hefur þetta verið 30 ára vegferð, ég held að samningurinn verði 30 ára á næsta ári, ef ég man rétt, og flestir hafa verið á þeirri skoðun að þetta hafi verið mikið gæfuspor fyrir okkur Íslendinga. Þó er það svo að við verðum áfram að sinna vel hagsmunagæslu eins og komið hefur fram hér í umræðunni. Ég tel mjög mikilvægt í því sambandi að benda á það sem fram kemur í skýrslunni, að hagsmunasamtök hér á landi, m.a. Samtök atvinnulífsins, hafa hug á því að styrkja sína hagsmunagæslu betur og einnig er það í skoðun af hálfu Alþingis að styrkja sjálfstæða upplýsingaöflun enn frekar. Raunar varð ég talsvert undrandi þegar ég settist á þing og tók sæti í utanríkismálanefnd, mér fannst vægi okkar í hagsmunagæslunni minna en ég bjóst við en þó er búið að styrkja hana á undanförnum árum sem ég held að sé vel. Við verðum auðvitað að gæta að því að með þessum innleiðingum hér í íslenska löggjöf séum við einnig að sinna upplýsingagjöf til almennings og ég mun koma stuttlega inn á það síðar í ræðu minni.

EES-samningurinn tekur jú breytingum eins og viðskiptaumhverfi í Evrópu almennt og raunar í heiminum öllum og við Íslendingar viljum ekki vera eftirbátar annarra þjóða í því samstarfi. Ég hef nefnt margsinnis hér í ræðustól að þátttaka okkar í því samstarfi tryggir jafnframt ásættanleg lífskjör hér á landi og ekki síður öryggis- og varnarmál og sjálfstæði landsins því að það byggir allt á góðu samstarfi við okkar samstarfs- og vinaþjóðir.

Aðgangur að alþjóðlegum mörkuðum er okkur mikilvægur. Í stóra samhenginu erum við Íslendingar framúrskarandi hvað varðar utanríkisþjónustu í ljósi smæðar landsins, leyfi ég mér að fullyrða. Í þessu alþjóðasamstarfi, m.a. því alþjóðasamstarfi sem snýr að EES-samningnum, kristallast auðvitað mikilvægi þess að við Íslendingar sýnum oft á tíðum frumkvæði í þeim samskiptum. Það má eiginlega segja að samstarf okkar við nágrannaþjóðir, bæði í Evrópu og ekki síst vinaþjóðir eins og Bandaríkin, tryggi einnig öryggis- og varnarmál okkar og milliríkjaviðskipti eru bara partur af því öryggissjónarmiði.

Eins og ég hef nefnt hefur EES-samstarfið og samningurinn tekið breytingum á gildistímanum. Þau tækifæri sem Íslendingum hafa opnast með tilkomu samningsins eru ótvíræð en þó er það svo að utanríkisviðskipti okkar hafa náttúrlega aukist verulega og heimurinn verið að opnast á undanförnum áratugum en í því felast líka áskoranir. Við höfum til að mynda verið að gera fríverslunarsamninga og talið að það sé leið til þess að auka tækifæri okkar hér heima en einnig og ekki síður til þess að opna á möguleika erlendis frá hingað til lands. Við gerðum til að mynda fríverslunarsamning við Kína. En ég sakna þess að við höfum ekki sóst eins sterkt eftir fríverslunarsamningi við Bandaríkin sem ég held að sé mjög mikilvægt að við hugum að. Auðvitað geri ég mér grein fyrir því að það kunna að vera hindranir í vegi þar en vil a.m.k. nefna að vert sé að kanna þann kost algerlega til hlítar. Utanríkismálanefnd ferðaðist til Bandaríkjanna á síðasta þingi og þar voru þessi málefni m.a. tekin upp og eðlilega er það löng vegferð að skoða kosti og galla slíks samnings. En ég vil brýna utanríkisráðherra hvað þetta varðar. Auðvitað eru 60% af okkar útflutningi á vörum og þjónustu að fara til ríkja innan EES en sögulega hafa samskipti okkar við Bandaríkin verið mjög mikil. Bandaríkjamenn eru til að mynda stærsti hópurinn sem sækir hingað til lands sem ferðamenn og þar er um gríðarlega stóran markað að ræða. Íslendingar hafa þó svo sannarlega verið að gera sig gildandi þar á undanförnum árum.

Rétt eins og þegar við ræddum EES-samninginn hér síðast á þingi þá tengist hann auðvitað alþjóðasamstarfi almennt og ekki er hægt að ræða um hann án þess að nefna breytt öryggislandslag í Evrópu. Nú hefur geisað stríð í Úkraínu um tveggja ára skeið og sumir hermálasérfræðingar vildu á sínum tíma meina að það tæki Rússlandsher bara örfáa daga eða jafnvel vikur að taka yfir landið en sem betur fer var það nú ekki raunin. Það má eiginlega segja að stríðið hafi gefið NATO nýjan og aukinn tilgang, eðlilega, en líka þétt raðir frjálsra þjóða í Evrópu og víðar um heim til að standa gegn slíku innrásarstríði. Þetta hefur að sjálfsögðu haft efnahagsleg áhrif hér á landi og ekki síst í Evrópu og mun gera áfram. Það eru óvissutímar í vestrænum heimi og mikilvægt fyrir okkur hér á landi að taka mið af þeim breytta veruleika á öllum sviðum.

Fyrir Alþingi liggur frumvarp um rýni erlendra fjárfestinga hér á landi og er málið í vinnslu í efnahags- og viðskiptanefnd. Það er mikilvægt að við tryggjum regluverk hvað þetta varðar og vöndum okkur á þeirri vegferð. Þjóðaröryggi verður æ mikilvægari þáttur í starfi stjórnvalda og við megum ekki neinn tíma missa til að efla áfallaþol þjóðarinnar í ljósi þeirrar stöðu sem blasir við okkur. Þar er auðvitað samstarfið við vinaþjóðirnar einna mikilvægust. Við verðum að hafa í huga, er við ræðum þetta samstarf, að í flestum tilfellum er töluvert mikill samhljómur á milli hagsmuna Íslands og Evrópusambandsins en stundum koma upp veigaminni mál sem geta snert hagsmuni Íslands sérstaklega og þá verðum við að spyrna við fótum.

Eins og ég hef nefnt er samstarfið um samninginn gott og það er okkar á Alþingi að tryggja árangurinn af honum og við megum ekki sofna á verðinum. Ég fagna því að hæstv. utanríkisráðherra sé sérstaklega að skoða svokallaða gullhúðun, sem hann nefndi reyndar í ræðu sinni blýhúðun og ég er honum sammála, ég kann betur við það orðalag. En í þessu ljósi þá liggur náttúrlega fyrir að áhrifin af innleiðingum taka stundum tíma að koma fram og það verður að vera algerlega skýrt, bæði gagnvart þinginu og ekki síst þjóðinni og fyrirtækjum í landinu, hvað eru gerðir frá Evrópusambandinu og hvað er einhvers konar viðbót af hálfu þingsins. Það þarf auðvitað ekki endilega að vera neikvætt í öllum tilfellum en það skiptir máli að við séum með skýr mörk þar á milli.

Það er í mínum huga, virðulegi forseti, óumdeilt að Ísland hefur hagnast á EES-samningnum. Það er auðvitað margt í okkar samfélagi sem við teljum sjálfsagt og er orðið samofið okkar daglega lífi sem upphaflega kom í gegnum EES-samninginn. Má til að mynda nefna réttindi til atvinnu, náms og búsetu innan EES en ekki síst auðvitað þátttöku í alls kyns verkefnum og er Erasmus-verkefnið einna stærst, en um 40.000 Íslendingar hafa tekið þátt í þeirri samvinnu. Þá má einnig nefna Horizon-verkefnið sem er auðvitað gríðarlega víðtækt rannsóknarnet og ávinningurinn af þátttöku í því verulegur. Hér hefur til að mynda verið rætt um stöðu okkar varðandi loftferðir sem gefur auga leið að skipta okkur Íslendinga sem eyþjóð afskaplega miklu máli og í gegnum tíðina hefur það auðvitað verið ákveðinn gæðastimpill að vera innan EES hvað það varðar. Allt eru þetta dæmi um ávinning af samstarfi sem hefur haft víðtæk áhrif.

Það hefur verið stefna þessarar ríkisstjórnar að það sé skynsamlegra að standa utan Evrópusambandsins og mun meiri einhugur verið um EES-samstarfið og í mínum huga hefur sú leið verið farsæl. Skoðanakannanir sýna almennt að stuðningur við þátttöku í EES-samstarfinu er mjög mikill en eins og hæstv. ráðherra nefndi hér í yfirferð sinni er þetta auðvitað bara verkefni, endalaust verkefni, að standa vörð um hagsmuni Íslands og betrumbæta okkar samningsstöðu og rýna vel í samninginn hér eftir sem hingað til. Það er kannski mikilvægasta verkefnið.

Það hefur oft verið nefnt í umræðunni að Evrópuregluverkið sé þunglamalegt og ég leyfi mér að segja að miðað við þá skilvirkni sem á sér stað hér hjá þinginu í okkar litla landi þá óar okkur stundum við því regluverki. Af þessu leiðir að þeim ríkjum sem eiga aðild að EES-samningnum ber þrátt fyrir allt að innleiða reglur eða aðlaga löggjöf sína að þeim reglum sem samþykktar hafa verið á vettvangi samstarfsins. Ef tafir eru á innleiðingu þá getum við auðvitað lent í þeirri stöðu að hafa litla aðkomu að því eða lent utan gátta og það þrýstir auðvitað á að við sinnum EES-samstarfinu vel og í einhverjum tilfellum er mjög mikilvægt að hafa svona snemmbæra aðkomu að því starfi.

Að lokum vil ég benda á mikilvægi þess að stjórnvöld kynni betur, eins og ég nefndi í upphafi ræðu minnar, fyrir landsmönnum hvernig ferli EES-samstarfsins er. Það gætir oft og tíðum alls kyns misskilnings í umræðunni um innleiðingarferlið sem getur valdið óþarfatortryggni. Stundum veltir maður fyrir sér hvort slíkur misskilningur endi jafnvel hér í ræðustól Alþingis, sem ég held að sé alls ekki gott fyrir samstarfið og fyrir okkur sem þjóð. Við erum auðvitað sjálfstæð þjóð. Hér á landi er þingræði og það eru engin lög sett hér á landi nema þau fari í gegnum löggjafarþingið. Það er því í mínum huga frekar ódýrt þegar aðilar í umræðunni reyna að afvegaleiða hana og gjaldfella þar af leiðandi mikilvægi þinglegrar meðferðar. En í því felst líka ábyrgð þingsins. Ég held að þingið verði að taka þetta mjög alvarlega. Alþingi verður að taka þessa umræðu, sýna fagleg vinnubrögð og gæta að hagsmunum þjóðarinnar í hvívetna. Það er okkar ábyrgð og ég held að EES-samningurinn verði okkur hagfelldur áfram.

Ég vil þakka fyrir góða umræðu það sem af er hér í þingsal. Það er mikilvægt fyrir okkur að fá skýrslu sem þessa reglulega til að vita hvar við stöndum varðandi þennan veigamesta viðskiptasamning sem við Íslendingar eigum.