154. löggjafarþing — 82. fundur,  7. mars 2024.

framkvæmd EES-samningsins.

581. mál
[15:01]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir skýrsluna, sem er mikilvæg og að mörgu leyti alveg prýðileg, og taka undir orð hans um að málefnaleg umræða um EES er mikilvæg og mikilvægt að allar raddir fái að heyrast. Ég verð að segja að frá mínum bæjardyrum séð þá fór ég að taka nánast óvart þátt í umræðunni um þriðja orkupakkann. Ég var hérna í páskafríi og var svolítið hissa á því hvað var talað illa um andstæðinga þriðja orkupakkans þannig að ég tók mig til og las þingsályktunartillöguna þar sem átti að samþykkja þriðja orkupakkann og ég sá að það var ekkert þar. Ég skrifaði grein í Morgunblaðið sem birtist allt í einu á miðopnu. Ég ætlaði að fara að laga hana, fannst hún ekki nógu góð, en þá búmm, birtist hún strax á miðopnu. Það var haft samband við mig og svo sogaðist ég inn í þessa umræðu.

Því meira sem ég skoða málið því sannfærðari verð ég um að það hafi verið gríðarleg mistök af Íslands hálfu að samþykkja þriðja orkupakkann. Hver er ástæðan fyrir því? Það eru margar ástæður en aðalástæðan er þessi: Af hverju á Ísland að samþykkja lög um raforkuviðskipti yfir landamæri og gangast undir stofnun sem hefur eftirlit með raforkuviðskiptum yfir landamæri, inn til Evrópu, inn á innri markað EES, þegar Ísland selur ekki raforku og stundar ekki raforkuviðskipti yfir landamæri? Við samþykkjum ekki járnbrautatilskipanir ESB líkt og Noregur þarf að gera, sem er umdeilt þar. Af hverju eigum við að fara að samþykkja lög um raforkuviðskipti yfir landamæri þegar við stundum þau ekki? Og af hverju sögðu íslenskir embættismenn ekki, ekki við heldur embættismenn í Brussel í sameiginlegu nefndinni: Heyrðu, við þurfum ekki að samþykkja þessi lög af því að við stundum ekki viðskipti yfir landamæri, en við skulum gera það ef Ísland ákveður að leggja sæstreng til Evrópu, inn á innri markaðinn, þá skulum við samþykkja lög um raforkuviðskipti yfir landamæri.

Þetta voru rökin. Þetta voru rök sem fengu ekki að heyrast. Við í Orkunni okkar, sem ég er formaður fyrir, gerðum heila sérfræðingaskýrslu og héldum blaðamannafund í Þjóðmenningarhúsinu um skýrslu sem var vel unnin að mínu mati. Við lögðum mikla vinnu í þetta. Þau umfjöllunarefni sem þar komu fram fengu enga umfjöllun í íslenskum fjölmiðlum. Ég efast um að nokkur hlustandi eða áhorfandi RÚV viti það hver helstu rök Orkunnar okkar voru fyrir því að við ættum að hafna þriðja orkupakkanum, að við eigum ekki að samþykkja lög um raforkuviðskipti yfir landamæri af því að við stundum ekki raforkuviðskipti yfir landamæri.

EES-samningurinn er mikilvægasti alþjóðasamningur sem Ísland hefur gert og það má jafna honum saman við Gamla sáttmála frá 1262 þegar við gengum Noregskonungi á hönd. Við erum vissulega sjálfstætt og fullvalda ríki í dag en á þeim tíma, á miðöldum, gengum við norska efnahagssvæðinu á hönd, hagsvæði norsku krúnunnar á þeim tíma. Við fengum lögbók 1271, Járnsíðu, sem Íslendingar höfnuðu af því að hún tók ekki tillit til íslenskra aðstæðna. Við fengum síðan nýja lögbók tíu árum seinna, Jónsbók, sem tók tillit til íslenskra aðstæðna og enn í dag eru kaflar úr þeirri bók hluti af íslenskum lögum af því að hún hún tók tillit til íslenskra aðstæðna.

Ísland á að hafa frumkvæði að því að EES-samningurinn taki tillit til íslenskra aðstæðna. Það höfum við ekki gert. Það þarf að taka tillit til þess að við erum eyja í Norður-Atlantshafi sem er ekki á meginlandi Evrópu. Við erum ekki Lúxemborg þótt margir virðist vilja halda það, ríki sem þú getur nánast keyrt fram hjá. Ég heyrði að einn vinur minn missti af stoppistöð og hann lenti í Þýskalandi á næstu stoppistöð. Við erum ekki Lúxemborg, við erum ekki á miðju meginlandi Evrópu. Reglurnar sem við þurfum á að halda eru öðruvísi. Það var t.d. ekki tekið tillit til Íslands í ETS-samningunum. Þá var sagt við okkur: Nei, þið eigið að fá sömu reglur og eru á Kýpur og Möltu. EES og Evrópusambandið hafa líka skyldur gagnvart okkur sem samningsaðilar. Þetta er samstarfssamningur. Það segir í EES-samningnum sjálfum, í 1. gr., með leyfi forseta:

„Markmið þessa samstarfssamnings er að stuðla að stöðugri og jafnri eflingu viðskipta- og efnahagstengsla samningsaðila við sömu samkeppnisskilyrði og eftir sömu reglum með það fyrir augum að mynda einsleitt Evrópskt efnahagssvæði sem nefnist hér á eftir EES.“ — Samstarfssamningur.

Tilskipanir frá Evrópusambandinu, það stendur á þeim „EEA relevance“ ef þær eiga við um Evrópska efnahagssvæðið. Ég hef ekki enn þá séð eina einustu tilskipun eða reglugerð frá Evrópusambandinu sem á við um EES-samninginn þar sem er tekið tillit til hagsmuna Íslands, ekki eina einustu. Eins og með ETS-kerfið varðandi flugsamgöngur, þá var bara sagt: Þið getið fengið sama pakka og Malta og Kýpur. Svo er hins vegar Spánn en þeir sömdu sérstaklega fyrir sig um að Kanaríeyjar væru metnar sem ystu mörk á ysta svæði. Þeir þurfa ekki að fara að taka tillit til kolefnisgjalds varðandi siglingar fyrr en 2030. Það er lágmark að EES taki tillit til Íslands sem hluta af Evrópska efnahagssvæðinu, sem eyju norður undir heimskautsbaug, í Norður-Atlantshafinu, og geri það við samningu EES-reglna. Það hefur ekki verið gert hingað til.

Það var talað um að heimurinn væri að breytast. Heimurinn er alltaf að breytast. Hann er búinn að breytast síðan Jóhannes Reykdal gerði fyrstu virkjun sína 1904. Hann er búinn að breytast á síðustu 15 árum frá því að snjallsíminn var fundinn upp sem flestir ráðherrar og þingmenn halda alltaf í höndunum á sér. Það eru 15 ár síðan, rúmlega 15 ár síðan snjallsíminn kom. Það var ekki EES að þakka. Það var tæknibreytingum að þakka.

Og varðandi bókun 35 þá er mikilvægt að horfa til þess að það var gengið frá þessu máli fyrir 30 árum síðan. Það var ákveðið að gera það með þeim hætti að 3. gr. — ég skal bara lesa greinina upp fyrir þingheim, með leyfi forseta:

„Samningsaðilar skulu gera allar viðeigandi almennar eða sérstakar ráðstafanir til að tryggja að staðið verði við þær skuldbindingar sem af samningi þessum leiðir. Þeir skulu varast ráðstafanir sem teflt geta því í tvísýnu að markmiðum samnings þessa verði náð.“

Í lögunum um EES-samninginn segir, með leyfi forseta:

„Skýra skal lög og reglur, að svo miklu leyti sem við á, til samræmis við EES-samninginn og þær reglur sem á honum byggja.“

Samræmisskýringin, það var lausnin. Það vissu allir á þeim tíma að þetta væri ekki fullkomin lausn. Það vissu allir að það myndi geta komið upp mál þar sem samræmisskýringin nægði ekki en þetta var gert svo að Alþingi Íslendinga myndi samþykkja EES-samninginn vegna þess að það myndi ekki vera meiri hluti fyrir samþykki EES-samningsins á þeim tíma ef við ættum að samþykkja bókun 35. Og nú á að koma 30 árum seinna og segja: Heyrðu, við verðum að samþykkja bókun 35, annars mun heimurinn farast. Það hefur gengið prýðilega á innri markaðnum fyrir okkur og að vera hluti af EES-samningnum í þessi 30 ár. Það eru allir að segja að þetta hafi gengið svo vel og breytt íslensku samfélagi, hafi haft góð áhrif og við raunverulega verið fullgildir meðlimir þar, virkir meðlimir þar. Það eru engin vandamál, ekki nema einstaka dómar sem koma upp að sjálfsögðu. Þar geta einstaklingar fengið skaðabætur ef réttarvernd íslenskra laga er ekki í samræmi við EES-reglurnar eða reglur ESB. Það verða að vera sömu reglur á sama fótboltavelli, sömu reglur á innri markaðnum.

Og að koma núna 30 árum seinna með löggjöf sem er alveg kristaltært að brýtur gegn stjórnarskránni að mínu viti. Af hverju er það? Mig langar aðeins að fjalla um það. Það er vegna þess að bókun 35 fjallar um hið yfirþjóðlega vald Evrópusambandsins, fjallar um rétthæð lagareglna og fjallar um það að stangist íslensk lög á við reglur Evrópusambandsins þá gangi lög Evrópusambandsins framar. Þetta var alveg skýrt á sínum tíma. Það kemur fram í greinargerð um bókun 35, í kaflanum um framkvæmd EES-reglna, sem mig langar að lesa hér upp úr með leyfi forseta:

„EB-reglur ganga framar settum lögum í aðildarríkjum EB.“ — Af því að þetta er EB á þeim tíma, Evrópubandalagið. — „Dómstóll Evrópubandalagsins hefur kveðið skýrlega á um það í máli 106/77“ — í svokölluðu Simennthalsmáli, ég les ekki nafnið á dómnum í heild — „að ákvæði Rómarsamningsins, og þær ákvarðanir stofnana EB, sem hafa bein réttaráhrif, geri sjálfkrafa óvirkt gagnstæð ákvæði gildandi landslaga, einnig þeirra laga sem sett eru eftir að EB-reglan hefur tekið gildi.

Í EES-samningnum er engin skylda á hendur EFTA-ríkjunum um að taka upp forgangsreglu EB-réttarins. Það var lengi krafa EB í samningaviðræðunum um EES að EFTA-ríkin samþykktu forgang EES-reglna þar sem réttarstaða einstaklinga yrði ekki tryggð á sama hátt í EFTA-ríkjunum og í EB-ríkjunum ef dómarar í EFTA-ríkjunum dæmdu á grundvelli landsréttar þó hann stangaðist á við EES-reglur.“

Það var engin skylda á hendur EFTA-ríkjunum að taka upp forgangsreglu EB. Það var engin skylda, það er alveg skýrt mál. En núna er allt í einu búið að finna upp þessa skyldu: Heyrðu, jú, við verðum að samþykkja bókun 35 af því að annars mun heimurinn farast.

Og áfram, með leyfi forseta, langar mig að lesa:

„EFTA-ríkin féllust ekki á þessa kröfu EB þar sem ljóst var að í þeim EFTA-ríkjum þar sem þjóðarétturinn hefur ekki þegar forgang fyrir landslögum, mundi forgangsregla EB-réttarins kalla á framsal löggjafarvalds. Í Austurríki og Sviss hefur þjóðaréttur forgang, þótt skiptar skoðanir séu um hve langt þeirra forgangsreglur ná.“

Svo kemur, með leyfi forseta:

„Niðurstaða samninganna var sú að í bókun 35 við EES-samninginn staðfesta samningsaðilar að löggjafarvald sé ekki framselt.“ — Það kemur alveg skýrt hérna fram að markmiðum um samræmda túlkun EES-reglna verði að ná með reglum í réttarkerfi hvers ríkis. Við höfum reynt að ná þessu markmiði með samræmisskýringunni í 3. gr. laga um EES.

Og einnig, með leyfi forseta:

„Samningsaðilar skuldbinda sig því til, ef þörf krefur, að lögfesta túlkunarreglur þess efnis, að ef upp kemur misræmi milli EES-reglna sem hafa verið lögfestar og annarra ákvæða í lögum, þá gildi reglur EES í því tilviki. Sjá nánar 3. gr. frumvarps til laga um Evrópska efnahagssvæðið og athugasemdir við þá grein.“

Það er vísað í 3. gr. hvað þetta varðar, í samræmisskýringuna. Það að ætla núna að fara að lögfesta reglu um það að reglur EB-réttarins séu rétthærri en íslensk lög frá Alþingi Íslendinga, stangist þau á, sem er mjög ólíklegt af því að við reynum alltaf að hafa alla lagasetningu okkar í samræmi við samninginn, að þá verði almenn lög með uppruna í Brussel, uppruna í ESB-löggjöf, rétthærri en önnur almenn lög frá Alþingi Íslendinga. Það stenst ekki stjórnarskrá Íslands. Það er takmörkun á löggjafarvaldi, eins og kom fram áðan hjá mér, vegna þess að skýringarreglurnar eru þannig.

Í hæstaréttardómi sem féll núna 28. febrúar fer Hæstiréttur ágætlega yfir þetta. Hann talar um forgangsreglur í lögfræði sem leysa úr árekstri til að koma í veg fyrir — þetta er í 40. mgr. í dómi 24/2003. Hann talar um að stjórnarskrá sé æðri öðrum lögum, þ.e. að æðri reglur gangi framar lægra settum, lex posterior reglan, fræg regla í lögfræði. Stjórnarskrá er rétthærri en almenn lög. Það er ekki munur á almennum lögum gagnvart uppruna þeirra en hins vegar ganga sérlög framar almennum og síðari lög ganga framar eldri lögum. Þannig er það.

Í þessum dómi sem hér er búið að vera að vísa til og dásama, og ég get ekki séð annað en að eigi við um sjálfan mig sem var í fæðingarorlofi í fyrra, er alveg klárt mál að að sjálfsögðu er verið að tala um túlkun á EES-samningnum en það breytir því ekki að hægt er að fara fram á skaðabótamál ef það er verið að brjóta á einstaklingi þegar íslenska ríkið fer ekki eftir EES-reglum. Og það er ekkert nýtt hjá EFTA-ríkjunum. Ég get tekið dæmi hérna, svokallaðan NAV-skandal í Noregi. Þar voru 80 einstaklingar dæmdir óréttilega fyrir tryggingasvindl á almannatryggingum og 2.400 tryggingaþegar voru krafðir um endurgreiðslu. Það var vegna kröfuhörku norska ríkisins um framfylgd sem þeir héldu að væri í norskum lögum og samkvæmt EES-reglum. En þeir túlkuðu þetta ekki rétt. Þeir brutu á fólkinu þannig. Það voru einstaklingar settir í fangelsi í Noregi, 80 einstaklingar voru settir í fangelsi vegna þess að þeir voru sakaðir um tryggingasvik af því að þeir túlkuðu EES-reglurnar ekki rétt. (Forseti hringir.)

Ísland á ekkert sambærilegt mál og NAV-skandalinn í Noregi, ekki eitt einasta mál sem kemst nálægt því. Svo erum við að halda því fram að okkur hafi gengið illa (Forseti hringir.) að framfylgja EES-reglum, sem er bara rangt. Við höfum gert það vel og það er mekanismi til að taka á því ef það koma upp tilvik sem leiða til skaðabóta.