framkvæmd EES-samningsins.
Frú forseti. Það er ánægjulegt að vera hér kominn að ræða um EES-samninginn. Mig langar að byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir góða skýrslu og samantekt í þessu máli. Þar sem svona skýrslur koma út á hverju ári þá ákvað ég að nota gervigreind til að taka saman mismuninn milli skýrslu þessa árs og þess síðasta. Það er athyglisvert að meira og minna allt saman var það sama en þó eru þrjú atriði sem gervigreindin sagði mér að hefðu komið ný inn á þessu ári. Í fyrsta lagi að í nýju skýrslunni er talað um hvað hefur gerst nýtt innan Evrópusambandsins og hverjar áskoranir Evrópusambandsins og EES eru, sérstaklega í tengslum við innrás Rússa í Úkraínu. Þar er líka talað um nýja samninga og tilskipanir sem hafa komið og tengjast Íslandi, m.a. um fjárfestingar í tengslum við græna orku og þátttöku í nýjum ESB-verkefnum. Síðan sagði gervigreindin mér það einnig að þarna væri fjallað um aukna hagsmunagæslu og hvað hún væri mikilvæg. Þannig bar nú á nokkrum sekúndum gervigreindin saman skýrslu þessa árs og ársskýrslu síðasta árs. Það er spurningin samt hvort ég hefði kannski átt að biðja gervigreindina líka um að taka ræðu síðasta árs og búa til nýja ræðu fyrir mig en ég ákvað að það væri viturlegra að ég gerði það að þessu sinni.
Það er mikilvægt í þessu að horfa einmitt á EES-samninginn. Sumir vilja helst ræða bókun 35 en við hin snúum okkur kannski að 34 og 36. Ég veit ekki einu sinni hvort þær eru til þar sem bókun 35 virðist afar hugleikin öllum hér en ég ætla ekki að eyða tíma í hana, enda er alveg merkilegt hvað sumir geta bullað þegar kemur að því máli í stað þess að lesa hlutina beint út.
En snúum okkur aftur að EES-samningnum. Það er nú einu sinni þannig að á síðasta ári voru 30 ár liðin frá því að skrifað var undir samninginn og hann gekk síðan í gildi um áramótin 1993/1994, þannig að við erum að fagna 30 ára afmæli þess að hann varð virkur. Þessi samningur hefur haft mjög góð áhrif, myndi ég segja, á íslenskt samfélag. Það hefur maður séð sjálfur með því að vera búsettur erlendis, vinna erlendis og aðrir eins og ég hafa náð að gera það án þess að flækjustigið sé mjög mikið og svo komið oft hingað til baka og það er náttúrlega af hinu góða. En það eru ekki bara persónuleg áhrif á fólk sem þessi samningur hefur haft heldur hefur hann einnig að sjálfsögðu veitt mikil viðskiptatækifæri enda gefur þessi samningur Íslandi aðgang að mun stærri markaði, þó svo að kannski mætti opna hann enn þá meira fyrir enn fleiri vörur og þjónustu.
Það eru líka aðrir pólitískir, lýðræðislegir og efnahagslegir hlutir sem samningurinn hefur haft áhrif á og mig langar að nefna dæmi. Hér hefur stundum verið kvartað yfir því í umræðunni að það sé of mikið af Evrópusambandsreglugerðum að koma hingað inn en ég hef verið á þingi í tvö og hálft ár og sit í utanríkismálanefnd þar sem þessar reglugerðir fljóta í gegn og koma síðan hingað inn í þingið til samþykktar og ég hef ekki séð eina einustu, a.m.k. ekki í fljótu bragði, sem gerir ekki eitthvað gott fyrir Ísland. Þá á ég sérstaklega við þann fjölda af reglugerðum sem settar hafa verið í tengslum við fjármálakerfið, en við sem gengum í gegnum hrun fyrir ekki svo löngu síðan þurftum á mörgum af þessum reglugerðum að halda. Þær setja einmitt upp reglur og lagaumgjörð til að tryggja að fjármálakerfið virki eins og það á að virka. Það er í rauninni dálítið merkilegt að við höfum þurft að bíða eftir þessum reglum frá Evrópusambandinu í stað þess að læra af þeim skelfilegu hlutum sem við gengum í gegnum 2008.
Það er fleira en bara regluverkið sem við höfum fengið í gegnum það að vera hluti af EES. Við höfum einnig fengið aðgang að hinum ýmsu prógrömmum sem Evrópusambandið er með. Hér á undan voru nefnd Erasmus- og Horizon-verkefnin sem hafa stutt Íslendinga í því að fara í nám og ýmislegt annað erlendis en hafa einnig veitt ótrúlega mikið fjármagn til rannsókna og nýsköpunar. Þar er líka hægt að nefna nokkur af þeim verkefnum sem eru nýlega komin í gang eða hafa nýlega verið nýtt hér á landi. Eins og kemur fram í skýrslu hæstv. ráðherra þá hefur t.d. RescEU-áætlunin, sem er á sviði almannavarna, verið nýtt í náttúruhamförunum út af Reykjanesi. Það var einnig í fyrra sem gengið var frá þátttöku Íslands í svokallaðri InvestEU-áætlun sem gerir nýsköpunarfyrirtækjum kleift að sækja sér mikinn pening. Um þessar mundir er svo unnið að þátttöku í áætlun Evrópusambandsins um örugg fjarskipti um gervihnetti. Allt eru þetta verkefni sem eru á dagskrá.
Þess er líka vert að geta að í þessari viku gengu í gildi tvær tilskipanir eða gerðir frá Evrópusambandinu innan Evrópusambandsins og er verið að vinna að því að taka þær upp í EES. Það er annars vegar gerð um stafræna markaði, eða það sem kallast á ensku, með leyfi forseta, Digital Markets Act, og hins vegar gerð um stafrænar þjónustur, eða á ensku, með leyfi forseta, Digital Services Act. Þar er verið að setja því ýmsar skorður að stórir aðilar innan tæknigeirans geti verið með einokunarstöðu á sviði stafrænnar þjónustu. Þetta hefur breytt til að mynda heilmiklu í tengslum við það hvernig fyrirtækin setja upp sínar þjónustur og bjóða upp á þær.
Það er líka mikilvægt að átta sig á því að í gegnum EES-samninginn höfum við fengið mikla neytendavernd, langt umfram það sem við hefðum kannski fengið annars. Gott dæmi: Ef flugfélag seinkar flugi eða fellir það niður þá græðum við á því að vera partur af EES-samningnum því að það er samevrópskur markaður og reglugerðir um flug og réttindi flugfarþega. Ég hefði séð það í anda að við færum að setja einhverjar slíkar reglur í kringum okkar eigin flugfélög bara ein og sér. Þannig fá neytendurnir betri þjónustu og það er á endanum einmitt það sem bókunin sem ég lofaði að tala ekki um snýr að, að tryggja það að neytendur og almenningur á Evrópska efnahagssvæðinu fái sömu réttindi. Það er það sem þarf að tryggja.
Sumir hér á þingi virðast halda að það sé algjört vesen að vera í þessu EES-samstarfi og það þýði bara endalausan pappír frá þessum skriffinnum í Brussel, eins og það er orðað. Já, þær eru margar, það fer ekkert á milli mála en það er líka mikilvægt að átta sig á því að langflestar þeirra ganga út á neytendavernd og réttindi fyrir okkur sem íbúa og að það sé ekki verið að brjóta á réttindum okkar. Það er í rauninni bara skammarlegt að við séum ekki jafn dugleg að skrifa hluti og tryggja þessi réttindi okkar eins og þessir skriffinnar í Brussel virðast gera.
Svo er stundum talað um að hér sé verið að gullhúða eða blýhúða þessar reglugerðir, það sé verið að bæta við hlutum. Það er náttúrlega á okkar eigin ábyrgð ef slíkt er að gerast vegna þess að það erum við sem löggjafi sem erum að lesa og fara yfir þessi mál sem koma frá ríkisstjórninni og það er okkar hér á þingi að tryggja að ekki sé verið að bæta þar við einhverju. Það er ekki eins og það gerist erlendis frá, það gerist bara hér innan ráðuneyta og annarra staða.
Mig langar hins vegar að benda hæstv. utanríkisráðherra á eitt. Hann talaði um að orðið gullhúðun væri ekki gott og frekar ætti að nota blýhúðun af því að þetta væri íþyngjandi en ekki eitthvað sem gæfi gull til þeirra sem væru að bæta við. Þá langar mig að benda hæstv. ráðherra á að eðlismassi blýs er 11,34 grömm á hvern rúmsentímetra en eðlismassi gulls er 19,32 grömm á hvern rúmsentímetra. Með öðrum orðum er blý næstum því helmingi léttara en gull. Kannski er það ástæðan fyrir því að hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttir notaði orðin gullhúðun en ekki blýhúðun þegar hún lagði fram sínar fyrirspurnir.
Það er líka oft spurt hvort við eigum ekki að auka þessa evrópsku samvinnu og hvort okkur sé best borgið innan eða utan Evrópusambandsins. Það er eins og það sé hatrömm andstaða sem er ekki endilega byggð á rökum hjá þeim sem eru á móti því að fara í Evrópusambandið. Maður spyr sig hvort hræðslan sé kannski sú að þannig tapist möguleikar á því að vera með sérhagsmunapotið sem tíðkast í íslenskum stjórnmálum. Það er líka mikið horft á landbúnaðinn og sjávarútveginn og sagt ýmislegt um það hvernig hann myndi fara ef við reyndum að ganga í Evrópusambandið. En sannleikurinn er sá að við vitum ekkert um það þar sem ekki hefur verið gengið það langt í samningaviðræðum að reyna að átta sig á því hver niðurstaðan yrði. Ég er nú einfaldlega þannig að ég vil geta tekið ákvarðanir byggðar á gögnum og því miður erum við hreinlega ekki með réttu gögnin til að taka þá ákvörðun. Til þess þyrfti að halda áfram með aðildarviðræður.
En við þurfum, óháð því hvort við ákveðum að fara inn í Evrópusambandið eða ekki, að vinna náið með þessum samstarfsþjóðum okkar. Við þurfum að horfa á öll þau prógrömm og sjóði sem eru hjá Evrópusambandinu og við þurfum að vera enn duglegri við að tryggja fjármögnun til nýsköpunar, rannsókna og tilraunaverkefna frá þessum sjóðum. Við þurfum líka að auka til muna samvinnu á sviði loftslagsmála og í nýsköpun tengdri þeim. Þar getur lítið land eins og Ísland leikið stórt hlutverk, ef við viljum, jafnvel með stórum aðilum eins og Evrópusambandinu. Við þurfum líka að tryggja að hagsmunagæsla Íslands sé mikil og góð og þar verðum við að passa okkur að horfa ekki í þá örfáu aura sem fara í hagsmunagæsluna vegna þess að hún ein og sér getur verið að spara okkur milljarða eða tryggja að milljarðar komi til okkar.
Þar með ætla ég að ljúka máli mínu á þessu ári um skýrsluna um EES. Það verður áhugavert að sjá hvað gervigreindin segir á næsta ári. Þá verður nú komin svokölluð gervigreindargerð sem er verið að ganga frá og samþykkja innan Evrópusambandsins. Hún mun m.a. skilgreina hvort það að nýta gervigreind til að gera hluti eins og ég gerði til að skoða skýrslurnar sé ásættanleg eða óásættanleg notkun á gervigreind. En það er einmitt eitt af því sem þessi gervigreindarreglugerð gerir; hún eykur gagnsæi og snertir á því hvar við viljum og hvar við viljum ekki að gervigreind sé nýtt. Ég held að það sé mjög gott að við séum að fá leiðbeiningar um það erlendis frá og ég veit að það eru hagsmunagæsluaðilar að taka þátt í því að tryggja að okkar rödd heyrist í því máli.