framkvæmd EES-samningsins.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans ræðu. Hann kom einmitt inn á gervigreindina. Það er verið að vinna að stóru og miklu verkefni innan Evrópusambandsins sem endar sjálfsagt með tíð og tíma sem löggjöf á Íslandi, sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum þar sem er unnið að slíku og örugglega mjög flókið og erfitt verkefni.
Hv. þingmaður kom inn á það að hann hefði notað gervigreindina til að bera saman skýrsluna fyrir ári og í ár og það væru þrjú ný atriði. Það var Evrópusambandið og innrásin í Úkraínu. Það hlýtur að hafa eitthvað verið minnst á það á síðasta ári, ég hef fulla trú á því. (GRÓ: Meira á þessu ári.) Já, meira um þetta. Svo voru það grænar fjárfestingar og aukin hagsmunagæsla. Við höfum náttúrlega gert það, ég held það hafi verið í fjárlögum 2019 sem við bættum við 230 milljónum einmitt í aukna hagsmunagæslu Íslendinga í Evrópusambandinu í Brussel. Mig minnir að hugsunin hafi verið sú að öll ráðuneytin væru með starfsmann þar sem kæmi að samskiptum við Evrópusambandið, þau ráðuneyti sem væru í slíku. Það hefur gefist ákaflega vel. Þá kem ég kannski að því máli sem ég ætlaði að bera upp við hv. þingmann og ég ætla að gervigreindin hafi ekki alveg áttað sig á, þá er kannski spurningin hvort hún taki vel eftir almennt eða ekki, en það er þetta ETS-flugmál. Ég tel það einmitt dæmi um mjög öfluga hagsmunagæslu, eins og kemur fram í skýrslunni, það var svolítið nýstárlegt, komið snemma inn í ferlið. Það varðar mjög stóra hagsmuni eins og við þekkjum á Íslandi þar sem flugrekstur er hvergi í hinum vestræna heimi stærri sem hlutfall af landsframleiðslu og síðan afleiðu hans sem er ferðaþjónustan, hefur gríðarleg áhrif inn í það. Mig langar að spyrja hvort hv. þingmaður hafi eitthvað að segja um þetta þar sem við sátum nú saman í utanríkismálanefnd þegar við vorum að fást m.a. við þetta mál á sínum tíma, því sem snýr að ETS, Evrópusambandinu og Íslandi.