154. löggjafarþing — 82. fundur,  7. mars 2024.

framkvæmd EES-samningsins.

581. mál
[15:33]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Já, ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Mig langar að nefna það að gervigreindin nefndi reyndar ETS, að það hefði verið nefnt í báðum skýrslunum, það hefði verið sameiginlegt með þeim báðum en það var ekki talað endilega um eitthvað meira í tengslum við það. Það sem hins vegar er mikilvægt þegar kemur að því sem hv. þingmaður var að nefna, hagsmunagæslunni, er að við samþykktum að það yrði settur peningur í að ráðuneytin hefðu aðila úti í Brussel til að fylgjast með þessum málum og tryggja hagsmuni Íslendinga. Því miður var það þannig í dálítinn tíma að það vantaði fulltrúa frá þónokkrum ráðuneytum. Það hefur hins vegar batnað. Það er líka að batna varðandi atvinnulífið á Íslandi, það er aftur að koma með fulltrúa út sem vantaði einnig um tíma. Það er rosalega mikilvægt að vera með þessa hagsmunagæslu og hún þarf að gerast, eins og ég hef nefnt áður, á mörgum sviðum, ekki bara í gegnum þessa fulltrúa sem eru í Brussel heldur líka í gegnum alla þá þingmenn sem fara erlendis að hitta kollega sína, ég tala nú ekki um EES/EFTA-nefndina sem gegnir mjög mikilvægu hlutverki og hefur t.d. leitt til þess að Ísland fær að taka þátt í ýmsum af þessum gerðum af því að við vekjum athygli á áhuga Íslands á þeim. Hv. þingmaður nefndi ETS. Þar held ég að hefði verið hægt að gera enn betur, nýta enn betur EES/EFTA-nefndina og aðrar þingmannanefndir til að auka skilning Evrópusambandsins á sérstöðu Íslands í þessu máli.