framkvæmd EES-samningsins.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og ég er hjartanlega sammála honum um að það eru einmitt mörg svona verkefni, samstarfsverkefni innan Evrópusambandsins, sem við njótum góðs af í gegnum EES-samninginn. Við njótum góðs af hlutum sem við gætum aldrei verið að gera sjálf vegna þess hvað við erum lítil þjóð.
Hv. þingmaður nefndi skýrslubeiðni um ábata tengdan flugrekstri vegna þess að við hefðum verið í EES-samstarfi. Ég væri til í að vera með á slíkri skýrslubeiðni með hv. þingmanni. Ég held að almennt sé einmitt hægt að fara í næstum því hvaða geira sem er og skoða ábata þar. Hefur eitthvað verið íþyngjandi fyrir einhverja? Já, en ég held að í mörgum tilfellum hafi það verið íþyngjandi til þess að tryggja neytendavernd og annað, tryggja flugöryggi og ýmislegt annað.
Það er eitt varðandi hagsmunagæsluna sem oft hefur verið nefnt og það er að það er munur á því að vera í EES og vera með þessa hagsmunagæslu eins og hún er í dag og sitja utan við ESB en ekki innan. Við fáum ekki alveg sama sæti við borðið eins og ef við værum í Evrópusambandinu. Þar myndum við sitja við borðið og fengjum þar af leiðandi fyrr möguleika á því að segja frá okkar sýn á hlutina. Það er talað um að við fengjum kannski sex Evrópuþingmenn, ég hef heyrt töluna sex, en það eru fjórir Evrópupíratar og þeir hafa náð að gera ansi mikið, bara fjórir, sérstaklega vegna þess að þeir eru bara duglegir að finna þau verkefni sem þeir hafa þekkingu á, eins og t.d. gervigreindargerðina sem er að koma.