154. löggjafarþing — 82. fundur,  7. mars 2024.

framkvæmd EES-samningsins.

581. mál
[15:40]
Horfa

Bjarni Jónsson (Vg):

Virðulegi forseti. Fram kemur í skýrslu utanríkisráðherra um framkvæmd EES-samningsins að nauðsynlegur hluti af EES-samstarfinu sé að halda uppi öflugri hagsmunagæslu, en enda þótt hagsmunir Íslands fari gjarnan saman með samstarfsríkjum innan EES þá komi „endrum og sinnum upp gerðir sem orka með öðrum hætti á íslenskar aðstæður en að er stefnt eða geta jafnvel haft skaðlegar afleiðingar“.

Ég held að það sé ekki ofsagt. Við finnum okkur reglulega og oft í þeirri stöðu að upp á okkur er þröngvað hlutum sem eiga hér ekki við vegna séríslenskra aðstæðna, legu landsins og smæðar þjóðarinnar, löggjöf og reglur sem ganga æ harðar gegn fullveldi þjóðarinnar, þrengja að möguleikum til eigin ákvarðanatöku sem sjálfstæðrar þjóðar í eigin landi, að við fáum skipað okkar málum sjálf. Hagsmunagæsla okkar í EES-samstarfinu er því afar þýðingarmikil strax á fyrstu stigum mála þannig að við fáum fremur notið sérstöðu okkar þegar svo ber undir. Þar höfum við á margan hátt staðið okkur vel en sökum smæðar okkar hefur okkur stundum skort stöðu og möguleika í málafylgju að eiga við tröllvaxið bákn kerfis embættismanna þar sem hagsmunir þeirra stærstu eru í fyrirrúmi. En stundum skortir okkur aðeins meiri kjark til að standa á okkar, láta ekki þrælslundina bera okkur ofurliði frammi fyrir Brussel-valdinu, ekki síst þegar saxað er á fullveldið. Þar eiga íslensk stjórnvöld og utanríkisráðherra að standa í stafni.

Hér hafa svifið yfir vötnum í dag gælur fólks sem dreymir um að við göngumst Evrópusambandinu frekar á hönd, ef ekki með aðild strax þá með frekara fullveldisframsali helst sem fyrst. Á aðra á eftir að reyna hvernig þeim ferst að verja sjálfstæði og fullveldi Íslands.

Í skýrslu utanríkisráðherra um framkvæmd EES-samningsins er stiklað á stóru og í mörgu fjallað um efni sem hafa verið á dagskrá Alþingis og til umfjöllunar á liðnu ári og því ætla ég ekki miklu við það að bæta hér. EES-samningurinn er einn okkar mikilvægasti viðskiptasamningur um frjáls en sanngjörn viðskipti. Einnig höfum við gert mikilvæga viðskiptasamninga við okkar helstu viðskiptalönd utan ESB, nú síðast nýlega við Bretland eftir að það sagði skilið við ESB, og þurfum við að gera enn betur eins og við Bandaríkin. Það er full ástæða til að utanríkisráðuneytið ráðist í samanburð á því hvernig mismunandi viðskiptasamningar eru að reynast okkur og hvort það reynist hvatning til að gera enn betur eftir því sem við á.

EES-samningurinn hefur í gegnum tíðina reynst okkur hagfelldur á mörgum sviðum fyrir milliríkjaviðskipti þó að við höfum að undanförnu staðið frammi fyrir mikilli óbilgirni og ósveigjanleika af hálfu Evrópusambandsins þegar kemur að viðskiptum með landbúnaðarafurðir og sjávarafurðir. Við okkur blasti gerbreytt staða þegar okkar helsta viðskiptaland í ESB, Bretland, gekk úr sambandinu og við þurftum bæði að semja við þá og Evrópusambandið um tollamál í breyttum veruleika. Til þess hefur hins vegar sparlega verið litið af hálfu viðsemjenda okkar, Evrópusambandsins.

Covid-heimsfaraldurinn og svo innrás Rússa í Úkraínu varð svo til þess að hleypa frjálsum og sanngjörnum milliríkjaviðskiptum í enn frekara uppnám þegar margar þjóðir Evrópusambandsins tóku til við að grípa til varna fyrir sína grunninnviði og eigin framleiðslu með auknum ríkisstyrkjum, ekki síst framleiðslu landbúnaðarafurða til að tryggja störf og eigið fæðuöryggi. Slíkar aðgerðir hafa skert enn frekar samkeppnisstöðu íslenskrar landbúnaðarframleiðslu sem ekki hefur notið sambærilegra styrkja. Það er eitt helsta forgangsverkefni í samningum við ESB um tollkvóta að tryggja hagsmuni íslenskra bænda og matvælaöryggi fyrir íslenska neytendur.

Við þurfum einnig að bregðast við nýjum veruleika af yfirvegun, stillingu og umfram allt festu með hagsmuni Íslands og þjóðarinnar í forgrunni. Það gerum við best í samstarfi við þær þjóðir og þau lönd sem standa okkur næst, þær þjóðir sem deila með okkur grunngildum og sýn á samfélag þjóðanna. Hér þurfa ekki síst þjóðir Evrópu að vinna vel saman að því að skapa eigin farsæla framtíð fyrir álfuna en einnig horfa fram veginn með öðrum þjóðum heimsins og takast á við ógnir gegn heimsfriði, vinna að aðgerðum gegn loftslagsbreytingum og verja líf og afkomu fólks með verndun vistkerfa heimsins. Það verður að treysta samstöðuna gegn aðsteðjandi ógnunum.

Slík nálægð má þó ekki verða til þess að gengið sé á hagsmuni okkar í viðskiptum, hvernig við högum lífi okkar, að við látum eftir hlut okkar, að staða okkar sem sjálfstæðrar þjóðar sé ekki virt. Það er sömuleiðis mikilvægt að við höldum áfram að byggja upp og styrkja tvíhliða samskipti og viðskiptasamninga við þjóðir utan Evrópusambandsins en lokumst ekki inni eða verðum of háð viðskiptum og samskiptum við eitt ríkjasamband.

Við lifum í mikið breyttum heimi sem þó hefur haft nokkurn aðdraganda. Við því höfum við verið að bregðast og verðum að gera áfram af krafti í mörgum grundvallaratriðum, bæði sem fullvalda þjóð á okkar forsendum og á grundvelli okkar sérstöðu. Fáir skilja betur en við Íslendingar þýðingu þess að standa vörð um endurheimt og nýfengið fullveldi. Ísland stendur því þétt að baki Úkraínu og öðrum ríkjum, smáum sem stórum, til fullveldis, yfirráða yfir eigin landi og möguleika til að móta og ráða eigin framtíð í lýðræðissamfélagi. Þá hljótum við að horfa til mikilvægis þess að tryggja sem best aðfangakeðju, ekki síst til að viðhalda grunninnviðum og að til staðar séu neyðarbirgðir, svo sem lyfja-, eldsneytis- og matvælabirgðir, að hér sé öflug matvælaframleiðsla og við getum verið sjálfum okkur sem mest nóg um matvæli. Við verðum að tryggja okkar fæðuöryggi. Engir milliríkjasamningar eða framkvæmd þeirra mega ganga á þann rétt okkar, þar með talið EES-samningurinn. Þvert á móti eigum við að nýta okkur milliríkjasamskipti til að tryggja þessa stöðu okkar.

Við verðum líka rísa upp af þeim dróma að sýna ekki meira frumkvæði í eigin lagasetningu um brýn hagsmuna- og réttindamál, svo sem í neytendavernd, náttúruvernd eða þar sem þjóðaröryggi okkar er undir, eins og með óheftum fjárfestingum útlendinga í orkuinnviðum, að ráðherra stari ekki í gaupnir sér og bíði eftir næstu tilskipun frá Brussel í stað þess að leggja sjálfur fram lagafrumvörp um þessi efni. Hér þurfum við að brjóta af okkur helsin.

Annars staðar höfum við reyndar ekki staðið okkur gagnvart EES-samningnum, t.d. í neytendavernd, eins og að innleiða tilskipun 104/2014 (ESB) sem hefur ekki enn formlega verði tekin upp í íslensk lög. En hún treystir betur skaðabótarétt neytenda, svo sem gagnvart meintu ólöglegu samráði skipafélaganna, Eimskipa og Samskipa, sem hefur stórskaðað neytendur og fyrirtæki sem ekki hafa átt aðra kosti en að skipta við þau sökum yfirburðastöðu þeirra á markaði. Á þessari verkfælni í lagasetningu hafa stórfyrirtæki með ráðandi stöðu á markaði hagnast og jafnvel gengið lengra fyrir vikið á kostnað almennings í landinu.

En þurfum við að bíða eftir innleiðingu þessarar tilskipunar? Nei, við getum einfaldlega gengið í að setja slík lög sjálf. Gleymum ekki að við erum enn frjáls og fullvalda þjóð í eigin landi og verðum vonandi um ókomin ár.