framkvæmd EES-samningsins.
Virðulegi forseti Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir góða framsögu í þessari mikilvægu umræðu. Þessari umræðuhefð var auðvitað komið á af ráðherra Sjálfstæðisflokksins. Ég þreytist ekki á því að rifja upp gjörbreyttar áherslur sem komu til með Sjálfstæðisflokknum varðandi hagsmunagæsluna og umgjörð EES-samningsins. Það verður sérstakt ánægjuefni að fagna 30 ára afmæli samningsins og full ástæða til að gera mikið úr þeim tímamótum.
Ég tek undir með hæstv. ráðherra varðandi þetta mikilvægasta skref Íslands á síðari tímum til samstarfs við aðrar þjóðir. Ávinningur þessa samstarfs er ótvíræður þótt honum fylgi auðvitað áskoranir eins og öllum góðum hjónaböndum. Áskoranirnar koma ekki síst til á miklum umbrotatímum, en þá hefur EES-samningurinn margsannað gildi sitt.
Hæstv. ráðherra undirstrikaði mikilvægi öflugrar hagsmunagæslu í samstarfinu. Þótt skoðun okkar sé almennt sú að hagsmunir Íslands fari saman með samstarfsþjóðunum í EES koma auðvitað reglulega upp aðstæður þar sem sérstaða Íslands gerir það að verkum að svo er ekki, eins og hv. þm. Bjarni Jónsson kom inn á í ræðu sinni hérna áðan. Það verður ekki nógu oft sagt að ef við gætum ekki hagsmuna okkar þá gerir það enginn. Undir forystu Sjálfstæðisflokksins hefur hagsmunagæslan í Brussel verið stórefld og það er virkilega jákvætt að atvinnulífið sýni þessu aukinn áhuga.
Einn af jákvæðum öngum EES-samstarfsins eru samstarfsáætlanirnar. Þátttaka Íslands hefur verið góð, sem endurspeglast m.a. í því að styrkveitingar til okkar eru meiri en framlög Íslands vegna þátttökunnar í þeim. Á þessum vettvangi hafa myndast ómetanleg tengsl og þekking og maður hefur heyrt ófáar góðar sögurnar af þessu samstarfi. Ég hvet hæstv. ráðherra sérstaklega til dáða varðandi nýjar áætlanir þar sem það tekur alltaf smá tíma til að koma slíkum verkefnum af stað, inn í stofnanaminnið.
Það er ekki ofsögum sagt hjá hæstv. ráðherra að ólögmæt innrás Rússlands í Úkraínu liti mjög EES samstarfið. Mjög hefur reynt á innviði og ákvarðanatöku ESB í þessu samhengi og margt staðist áskorunina. Um leið hafa aðrar brotalamir komið í ljós og því miður sjáum við sömuleiðis aukin dæmi um núning og um að samstaðan hafi veikst, en við upphaf árásarinnar kom samstaða Evrópu og annarra lýðræðisríkja skemmtilega á óvart, ef svo má komast að orði í þessu samhengi.
Veiklyndi ESB kom ekki síst í ljós varðandi orkumál og öryggis- og varnarmál, en þessi svið eru auðvitað nátengd. Sem betur fer vöknuðu forystumenn ESB upp við vondan draum og hafa gert stórátak á þessum sviðum samhliða breyttu hugarfari. Viðbrögðin hafa samt verið allt of sein og vinum okkar í Úkraínu mikil vonbrigði.
Í kafla skýrslunnar um rekstur EES samningsins er m.a. farið yfir innleiðingu EES-gerða og eftirfylgni ESA. Þar er farið yfir sveiflur milli tímabila þegar kemur að innleiðingarhallanum, en annað sem vakti athygli mína er orðsending framkvæmdastjórnar ESB um aukna eftirfylgni með framkvæmd reglna innri markaðarins sem þegar væru til staðar. Ég tek heils hugar undir þennan hugsunarhátt, enda vitum við að við Íslendingar erum að alla jafnan fyrirmyndar EES-borgarar, sérstaklega þegar kemur að því að framkvæma reglurnar sem við innleiðum. Við berum okkur helst saman við Norðurlöndin eins og í öðru, og þar er mikil samviskusemi varðandi framkvæmd innri markaðarins. Sömu sögu er ekki að segja um öll svæði innan EES þótt athyglin sé kannski ekki endilega þar. Það er því jákvætt að ESB hyggist beina spjótum sínum að þeim kimum.
Virðulegi forseti. Þó nokkuð margir hv. þingmenn hafa nefnt hnökra á EES samstarfinu sem varða svokallaða bókun 35. Hæstv. ráðherra kom nýlega með fína skýrslu inn í þingið til þess að hjálpa umræðunni hér og hún hefur þegar komið til umfjöllunar utanríkismálanefndar. Ég tek undir orð hv. þm. Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur um að umfjöllunin hafi verið góð, en eins og farið hefur verið hér yfir hefur æðsti dómstóll landsins kveðið mjög skýrt á um að brotalöm sé á lagaumgjörðinni sem snýr að EES-samningnum. Þótt ég sé því ekki endilega sammála, andspænis lögunum og skýrum vilja þingsins sem birtist í lögskýringargögnum, er í kjölfarið ljóst að við þingmenn þurfum að leggjast yfir þetta verkefni og finna flöt á því. Við förum jú með löggjafarvaldið og hér er mikill meirihlutastuðningur við EES samstarfið og vilji til þess að það gangi vel fyrir sig, Íslendingum til heilla og hagsbóta. Þannig höfum við nefnilega kosið að nýta fullveldi okkar með samstarfi við aðrar þjóðir. Þetta segi ég, þingmaðurinn sem dreymir svo sannarlega ekki um aðild að Evrópusambandinu, síður en svo.
Við vitum að það hafa verið vandkvæði með framkvæmd uppbyggingarsjóðsins. Ég ætla ekki að rekja það nánar hér, en það er jákvætt að íslensk fyrirtæki og félög hafa séð tækifæri í að taka þátt í verkefnum á vegum sjóðsins. Sjálfstæðisflokkurinn hefur einmitt lagt áherslu á kynningu á sjóðnum og tækifærum honum tengdum í sinni ráðherratíð undanfarin ár.
Ég verð þó að segja að niðurstaða viðræðna um aukinn markaðsaðgang fyrir fisk og aðrar sjávarafurðir eru ákveðin vonbrigði. Þótt ákveðin jákvæð skref hafi verið stigin í viðræðunum er það ekkert annað en hneyksli að þjóðir sem standa utan EES samningsins hafi greiðari aðgang að mörkuðum ESB með sínar sjávarafurðir en við sem erum hluti af innri markaðnum. Hneyksli. Þetta viðhorf hef ég margsinnis tekið upp við vini okkar í ESB og hvet hæstv. ráðherra til að halda áfram að þrýsta á um þetta, en sá áfangi náðist þó að ráðist verður í heildstæða endurskoðun á þessum málum milli Íslands og ESB.
Ég hef áður minnst á hagsmunagæslu okkar í EES samstarfinu. Þar skiptir forgangslisti stjórnvalda, tónninn sem er sleginn, miklu máli. Mig langar sérstaklega að nefna eitt forgangsmál, fráveitumálin, sem eru á þessum lista. Fyrirhugaðar hertar reglur ESB munu hafa mikil áhrif á sveitarfélög og þeim mun fylgja ævintýralegur kostnaður fyrir Íslendinga. Það er jákvætt hversu vel íslensk stjórnvöld hafa fylgst með áformum ESB og ég vil nýta tækifærið til að hvetja hæstv. ráðherra til dáða og til að gefa hvergi eftir. Ef fer sem horfir munum við ekki getað samþykkt upptöku þessara ESB-reglna án efnislegra aðlagana.
Virðulegi forseti. Ég get ekki lokið umfjöllun minni um EES-samninginn án þess að minnast á gullhúðun, eða blýhúðun, eins og hæstv. ráðherra vill frekar að við köllum hana og get ég verið honum sammála. Skýrsla hæstv. umhverfisráðherra um blýhúðun, sem kom fram vegna beiðni minnar og fleiri sjálfstæðismanna, er sláandi. Það er ljóst að við þurfum að vera vakandi fyrir þessari íslensku tilhneigingu til að þyngja regluverk frá ESB. Um það hef ég lagt fram sérstaka þingsályktunartillögu til að skerpa á þessu í störfum þingsins. En við þurfum líka að hefjast handa við að afhúða. Ég hef þegar lagt fram eitt smávægilegt en risastórt frumvarp ásamt hópi sjálfstæðismanna, til afhúðunar á ársreikningalögum og vonast til að það fái framgang í þinginu.
Virðulegi forseti. Það er mikilvægt að við ræðum EES-samninginn sem oftast og hvaða þýðingu hann hefur haft fyrir íslenskt samfélag og að við miðlum upplýsingum um hann til almennings. Umræðan í dag hefur verið góð og gagnleg og það er gott að heyra heilt yfir jákvæð viðhorf hv. þingmanna í garð samningsins. Ég tek undir með þeim og segi það og skrifa að við sjálfstæðismenn stöndum eftir sem áður vörð um EES-samninginn, mikilvægasta viðskiptasamning okkar Íslendinga. Það höfum við margsýnt með okkar verkum og munum halda áfram á sömu braut.