framkvæmd EES-samningsins.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir ræðu sína sem var áhugaverð og hún virðist vera stuðningsmaður EES-samningsins líkt og ég en vill ekki ganga inn í ESB sem ég er sammála. (DME: … samt í andsvari.) Já, ég er að spyrja um frekari skýringar, hv. þingmaður. Það sem vakti athygli mína er það að ég sé ákveðna hættu í EES-samstarfinu ef við stígum ekki niður fæti og förum að krefjast þess að það sé betur tekið tillit til íslenskra hagsmuna. Við sjáum það t.d. með evrópska ETS-kerfið, Emissions Trading System, þar sem er verið að versla með útblástur í flugi og skipum og þar sem lagðar eru álögur á flug og siglingar og líka í þriðja orkupakkanum þar sem við verðum að innleiða reglur um raforkuviðskipti yfir landamæri. Mig langar að spyrja hv. þingmann: Er ekki kominn tími til þess að við förum að krefja Evrópusambandið um að taka tillit til hagsmuna Íslands þegar það er að semja reglur sem eiga við um Ísland, sem hafa svokallaðan „EEA relevance“, að það sé hægt að taka tillit til Íslands með ákveðnari hætti þannig að samningurinn geti verið til langframa svo við séum ekki að sigla í strand með samninginn? Það stefnir allt í það að við förum að sigla í strand með samninginn ef við förum ekki að stíga niður fæti sem eyja í Norður-Atlantshafi en ekki á meginlandi Evrópu eins og Lúxemborg.
Önnur spurning varðar það að núna hafa verið uppfærslur á EES-samstarfinu hjá þeim þar sem er aukin samrunaþróun með sáttmálabreytingum. Maastricht-samningurinn var samþykktur áður en EES-samningurinn tók gildi og er hluti af honum, að sjálfsögðu, síðan með Nice, með Lissabon 2009 og með Amsterdam-sáttmálanum og svo kemur næsti samningur, skilst mér, sem er um svokallaðan strategískan samruna. Er ekki kominn tími til þess að við fáum að hafa meira um það að segja hvort ákveðnir sáttmálar fari beint inn í EES-samninginn eða ekki?