154. löggjafarþing — 82. fundur,  7. mars 2024.

framkvæmd EES-samningsins.

581. mál
[15:59]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni kærlega fyrir andsvarið þar sem hann beinir sjónum að því sem hann kallar hættuna í EES-samstarfinu og spyr mig hvort ég sé því sammála að við þurfum að stíga svona ákveðnar niður fæti. Ég veit ekki hvort ég líti á þetta sem hættu heldur miklu fremur sem viðfangsefni. Jú, ég tel vissulega að við þurfum að varast aukna tilhneigingu Evrópusambandsins til þess að teygja sig inn í allt og ekkert og hafa afskipti af öllu mögulegu. En ég kom ágætlega inn á það í framsögu minni hér áðan að það gætir auðvitað enginn hagsmuna okkar nema við sjálf. Hv. þingmaður spyr hvort það sé kominn tími til þess að krefjast þess að tillit verði tekið til okkar hagsmuna af meiri ákefð. Alveg örugglega. Ég er mikill stuðningsmaður fullrar og þungrar hagsmunagæslu fyrir Ísland í Brussel. Ég var einmitt aðstoðarmaður utanríkisráðherra Sjálfstæðisflokksins í utanríkisráðuneytinu þegar við komum þessari hagsmunagæslu aftur á sem hafði þá verið afnumin í tengslum við það þegar við vorum að berjast við það af öllu afli að koma okkur inn í Evrópusambandið. Síðan þá hafði ekki verið nein virk hagsmunagæsla varðandi EES-samstarfið og það er auðvitað ótrúlega miður og við erum enn þá svolítið að súpa seyðið af því, að reyna að ná aftur fyrri takti og krafti. Þannig að jú, ég er mikill stuðningsmaður betri hagsmunagæslu. En ég er líka að vara við, eins og ég kom inn á í minni framsögu, innlendum heimabökuðum vandræðum sem eru gull- eða blýhúðun. Það er auðvitað víti sem ber að varast.

Ég held að ég nái ekki að komast í seinni liðinn, sem ég held að hafi snúið að stofnanauppbyggingu Evrópusambandsins.