154. löggjafarþing — 82. fundur,  7. mars 2024.

framkvæmd EES-samningsins.

581. mál
[16:01]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Vissulega er mikilvægt verkefni að gæta hagsmuna sinna. Varðandi sáttmálana þá tók Amsterdam-sáttmálinn gildi 1999, Nice-sáttmálinn tók gildi 2003 og Lissabon-sáttmálinn tók gildi 2009. Vissulega fjalla þeir mikið um stofnanauppbyggingu en ekki eingöngu og má t.d. minna á að Lissabon-sáttmálinn í 194. gr. fjallar um orkusambandið þannig að það er ekki eingöngu stofnanauppbygging sem verið er að kveða á um í þessum sáttmála heldur frekari samruni, sem var ekki samið um á sínum tíma í EES-samningnum. En við virðumst fá þetta beint yfir okkur, þetta eru ákvæði sem lúta að frekari samruna, við erum að sogast inn í sambandið. Ég vitna í orð Sigurðar Líndals prófessors heitins, blessuð sé minning hans, en hann spáði því jafnvel að við gætum orðið dæmd inn í sambandið. Ég óttast að við séum að sogast inn í sambandið svo sannarlega.

Þá langar mig að bæta við einni spurningu sem lýtur að bókun 35. Hver er afstaða hv. þingmanns til þess að lögfesta bókun 35? Mig langar að lesa hér upp úr greinargerðinni sem var um bókun 35 fyrir rúmum 30 árum, með leyfi forseta:

„Í EES-samningnum er engin skylda á hendur EFTA-ríkjunum um að taka upp forgangsreglu EB-réttarins. Það var lengi krafa EB í samningaviðræðunum um EES að EFTA-ríkin samþykktu forgang EES-reglna þar sem réttarstaða einstaklinga yrði ekki tryggð á sama hátt í EFTA-ríkjunum og í EB-ríkjunum […]

EFTA-ríkin féllust ekki á þessa kröfu EB þar sem ljóst var að í þeim EFTA-ríkjum þar sem þjóðarétturinn hefur ekki þegar forgang fyrir landslögum, mundi forgangsregla EB-réttarins kalla á framsal löggjafarvalds.“

Framsal löggjafarvalds. Þetta var um bókun 35. Í ljósi þessa (Forseti hringir.) langar mig að spyrja hver afstaða hv. þingmanns er til bókunar 35 og þess að hún yrði lögfest (Forseti hringir.) og hvort hún sé ekki sammála því sem stendur í greinargerðinni fyrir 30 árum um að það sé framsal löggjafarvalds.