154. löggjafarþing — 82. fundur,  7. mars 2024.

framkvæmd EES-samningsins.

581. mál
[16:04]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir síðara andsvar. Ef ég skildi hv. þingmann rétt þá hafa þessar breytingar m.a. varðandi ákvarðanatöku innan ESB, sem eru eiginlega stærstu breytingarnar sem hafa verið gerðar á undanförnum árum, ekki bein áhrif á EES-samninginn. Þegar kemur að orkuáhyggjum hv. þingmanns í samstarfi við Evrópusambandið, þá deili ég ekki þeim áhyggjum eins og hefur nú komið áður fram í okkar samskiptum, skrifum, ræðuflutningi og öðru. Ég vona að ég sé ekki að leggja hv. þingmanni orð í munn en mér fannst að hann hefði verið í hópi fólks sem hafði t.d. miklar áhyggjur af því að Íslendingar kynnu að lenda í því að geta ekki farið í sturtu og við yrðum öll illa lyktandi ef við myndum samþykkja þriðja orkupakkann. Það var svona ákveðinn félagsskapur a.m.k. sem spáði fyrir um það. Það er a.m.k. fín lykt af okkur sem hér sitjum í dag og þessar áhyggjur hafa ekki raungerst sem og þessi heimsendaspá sem var höfð uppi í umræðunni um þriðja orkupakkann.

Hvað varðar forgangsregluna þá er það alveg á kristaltæru að hún gildir ekki hér á Íslandi, um forgangsáhrif Evrópuréttar. Hún gildir ekki í EES-samstarfinu. Um það snýst nú allt heila málið. Um það snýst bókun 35. Það er svona meginþungi þeirrar umræðu að við viljum ekki lögfesta hér bein forgangsáhrif. Við erum ekki á leiðinni bakdyramegin í Evrópusambandið, sannarlega ekki. Við höfum bara verið að styrkja hagsmunagæslu okkar í EES og setja upp frekari varnagla. EES-samningurinn er auðvitað samningur þar sem við fengum allt fyrir ekkert. Við erum með allt það besta frá Evrópusambandinu og ekkert af þessu versta og við eigum bara að halda áfram að hlúa vel að þessum samningi og standa vel að framkvæmd hans.