154. löggjafarþing — 82. fundur,  7. mars 2024.

slit ógjaldfærra opinberra aðila.

705. mál
[16:43]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég er alls ekki að gera lítið úr vandamálinu við þessa 478 milljarða en það breytir því ekki að hér er verið að gjaldfella skuldabréf sem ÍL-sjóður, sem er opinber aðili og þannig hluti af ríkinu, er skuldbundinn til að greiða. Það er verið að gjaldfella þau til að spara ríkinu vaxtagreiðslur fram í tímann. Það á að gera það upp strax í staðinn fyrir að láta líftíma bréfanna líða. Það hefur aldrei verið nokkurt skuldabréf frá íslenska ríkinu, svo ég viti til, sem hefur verið gjaldfellt vegna ógjaldfærni. Ég þekki ekki dæmi þess. Það væri gaman að vita hvort hæstv. ráðherra viti um það. Hún svaraði reyndar ekki seinni spurningunni varðandi það að ég tel að þetta mál gæti endað úti í Strassborg hjá Mannréttindadómstól Evrópu. Þetta er mjög veikt ákvæði, eignarréttarákvæðið úti í Strassborg, í viðauka við mannréttindasáttmála Evrópu, mjög veikt ákvæði, en ég get ekki séð Mannréttindadómstól Evrópu hafna því að þetta sé brot ef lífeyrissjóðirnir og eigendur þessara krafna verða fyrir tjóni. Hér er um skuldabréf að ræða, hér er um viðskiptabréf að ræða. Ef því yrði hafnað að þetta væri brot á þessu ákvæði í mannréttindasáttmálum, I.viðauka, þá er það ákvæði handónýtt. Þetta eru viðskiptabréfaheimildir. Ég skora því á hæstv. ráðherra að ljúka þessum viðræðum við lífeyrissjóðina og það án þess að við þurfum að samþykkja þessi lög, að stjórnarmeirihlutinn samþykki þessi lög um slit ógjaldfærra opinberra aðila, þ.e. slit af því að hluti af ríkissjóði sé farinn á hausinn.

Annað sem mig langar að benda á og kannski spyrja hæstv. ráðherra út í er það að við erum núna komin inn í hávaxtatímabil þannig að í samanburði við þá vexti sem eru í dag, og eru kannski að koma í framtíðinni, þá er ekkert víst að vextirnir sem eru á þessum bréfum séu allt of háir. (Forseti hringir.) Það var samið um þetta á algeru lágvaxtatímabili. Hefur það ekki áhrif á viðræðurnar (Forseti hringir.) og þá áhrif á væntanlega skaðabótakröfu?