Bráðabirgðaútgáfa.

154. löggjafarþing — 82. fundur,  7. mars 2024.

slit ógjaldfærra opinberra aðila.

705. mál
[16:45]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég er sammála hv. þingmanni þegar hann skorar á mig að ljúka þessum viðræðum. Besta leiðin til að lenda málefnum ÍL-sjóðs farsællega er að ná samkomulagi við eigendur skuldabréfanna og sú afstaða breytist ekki með framlagningu þessa frumvarps. Þess vegna er gott að þetta samtal sé hafið en sérstaklega er gert ráð fyrir því í skilmálum bréfanna að það reyni á ábyrgð ríkisins ef Íbúðalánasjóður, sem er þá núna ÍL-sjóður, getur ekki greitt af skuldum sínum. Frumvarpið hér setur það ferli í skipulagðan farveg.

Kröfuréttindi njóta auðvitað verndar stjórnarskrárinnar og mannréttindasáttmála Evrópu og í frumvarpinu felst ekki að slík réttindi séu skert eða þau færð niður heldur gerir það ráð fyrir að uppgjör slíkra krafna geti farið fram með öðrum hætti en áður var samið um. Eigendur krafna geta þannig farið á mis við vexti sem ella hefðu fallið til fyrir slitin en í staðinn er flýtt til þeirra greiðslu höfuðstóls sem þeim er unnt að hafa arð af. Frumvarpið gerir jafnframt ráð fyrir því að ef skaði hlýst af, þrátt fyrir allt, sé ríkissjóður eða sveitarfélag í hlutlægri ábyrgð fyrir þeim skaða. Eftir reglum frumvarpsins myndi ríkið eða sveitarfélagið efna ábyrgð sína að fullu. Frumvarpið gerir sérstaklega ráð fyrir uppgjöri ábyrgðar. Því til viðbótar gerir það ráð fyrir greiðslu skaðabóta ef tjón verður þrátt fyrir greiðslu við uppgjör aðilans og við uppgjör á ábyrgð. Þess utan er hér auðvitað um að ræða almenna löggjöf sem er þá til staðar og gæti mögulega í framtíðinni átt við um annað en það verkefni sem blasir við okkur nú þrátt fyrir að framlagning þessa frumvarps komi auðvitað ekki úr einhverju tómarúmi heldur er í samhengi við það sem við stöndum frammi fyrir. En ég bind vonir við að þessir samningar náist og að okkur takist (Forseti hringir.) að lenda málefnum ÍL-sjóðs farsællega.