fjármögnun kjarasamninga.
Forseti. Ég vil hrósa verkalýðshreyfingunni og Samtökum atvinnulífsins fyrir uppleggið í kjarasamningum. Samfylkingin fagnar áherslunni á sterkari tilfærslukerfi með sértækari kjarabótum í staðinn fyrir þeim mun meiri almennar launahækkanir. Þarna höfum við og verkalýðshreyfingin verið algjörlega samstiga. En ég get varla verið að óska ríkisstjórninni eða hæstv. fjármálaráðherra til hamingju því að hún talaði sig hása gegn nákvæmlega þessari nálgun núna fyrir jól og felldi allar tillögur okkar, úr kjarapakka Samfylkingarinnar, um vaxtabótaauka, húsnæðisbætur, barnabætur og þar fram eftir götunum.
Það sem skilur hins vegar á milli núna, og það er mikilvægt, er að Samfylkingin hefði ekki gert þetta svona, ekki án þess að finna til fjármögnun fyrir varanlegum rekstrarútgjöldum upp á fleiri milljarða, enda hefur Samfylkingin haft það sem reglu að koma aldrei með útgjaldatillögur inn í þingið nema þær séu fjármagnaðar og helst gott betur, sérstaklega á tímum verðbólgu og þenslu. Útgjaldahliðin er flott en það er engin fjármögnun. Við getum ekki annað en gagnrýnt það, ekki bara út frá þensluáhrifum heldur ekki síður ráðrúmi ríkisins til að veita þjónustu þegar fram í sækir. Það er auðvelt að auka bara útgjöldin eins og þessi ríkisstjórn hefur gert en það gilda ákveðin prinsipp þegar kemur að rekstri ríkissjóðs — eða hvað, hæstv. fjármálaráðherra? Ríkisstjórninni fannst mikilvægt að fjármagna varnargarða við Svartsengi með því að afla tekna en ekki tugmilljarða uppkaup á íbúðum sem fylgdu í kjölfarið og ekki heldur þessa milljarða í tengslum við kjarasamninga sem sagt er að verði 20 milljarðar á ári næstu fjögur árin.
Ég vil því spyrja hæstv. fjármálaráðherra: Hvers vegna? Eða öllu heldur, hvers vegna ekki? Finnst hæstv. fjármálaráðherra óþarft að fjármagna þessi útgjöld sérstaklega? Ef það er ekki gert með tekjum þá er það lántaka. Eða telur hæstv. fjármálaráðherra að hún muni finna 20 milljarða kr. niðurskurð eða hagræðingu núna sem ekki tókst að finna í fjárlögunum fyrir jól?