154. löggjafarþing — 83. fundur,  11. mars 2024.

fjármögnun kjarasamninga.

[15:12]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Fyrst vil ég að það komi skýrt fram að við erum ekki að tala um hluti sem eru glænýir af nálinni eða eitthvað sem ríkisstjórnin sem hefur setið öll þessi ár kannast ekki við og allt í einu setur á dagskrá nú. Við höfum verið að efla barnabótakerfið undanfarin ár. Við höfum verið að efla leigustuðning. Við höfum verið að efla framboðshliðina, þannig að það er ekki þannig. Mig langar að vita hvort hv. þingmaður sér engin tækifæri til að spara hjá hinu opinbera vegna þess að ég geri það. Ég sé mikil tækifæri til að fara betur með almannafé. Þær aðhaldsaðgerðir sem farið var í og hv. þingmaður talar um að því hafi fylgt mikill sársauki — ég get ekki tekið undir að því hafi fylgt mikill sársauki. Mér þykir eðlileg krafa af hálfu fjárveitingavaldsins og stjórnvalda að skoða það á hverjum degi (Forseti hringir.) hvort farið er eins vel með annarra manna peninga og kostur er. Svar við því núna er að það eru tækifæri (Forseti hringir.) og þess vegna segi ég: Það er sú leið sem við förum og hún þarf ekki að vera sársaukafull.