154. löggjafarþing — 83. fundur,  11. mars 2024.

lögbrot og eftirlit á innri landamærum.

[15:19]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég vil ítreka að það er stanslaust unnið að því að tryggja landamærin inn í landið. Ég vil líka árétta það að 93% allra þeirra farþega sem koma til landsins koma eftir fyrirframgefnum farþegaupplýsingum, 93%. Það er gríðarlega umfangsmikið og mannaflafrekt að ætla að taka upp tímabundið eftirlit á innri landamærunum og það er ekki talið að upptaka slíks eftirlits sé skilvirkt úrræði sem líklegt sé að dragi úr óreglulegum komum til landsins. Við verðum því að horfa á það hvernig við nýtum mannaflann best, hvernig nýtum við fjármagnið sem best. (Forseti hringir.) Ég tel að staðan á landamærum sé í nokkuð góðu horfi. Hana má alltaf bæta. Það eru aftur á móti útlendingalögin sem þarf verulega að bæta hér á Íslandi.