breytingar á lögum um útlendinga.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Mér þykir áhugavert að heyra að formaður Miðflokksins, sem hefur verið ötull við að benda okkur á að málefni útlendinga séu í ólestri og ekki í góðum farvegi, skuli, þegar ríkisstjórnin stígur fram sameinuð og búin að sameinast um heildarnálgun í útlendingamálum, finna því allt til foráttu þegar á að fara að taka á málaflokknum með heildstæðum hætti af ábyrgð, festu og mannúð. Ég finn ekki annað en að allir þeir sem hafa komið að þeirri vinnu, sem eru fjölmargir, hafi komið algjörlega heiðarlega að því borði og einhuga í því að bæta þetta kerfi. Við erum sammála um að það hefur verið mikil áraun á kerfið. Kostnaður er orðinn gífurlegur og við höfum sömuleiðis áhyggjur af því að þeir sem hingað koma samlagist ekki íslensku samfélagi. Það er oft og iðulega sem gerðir eru fyrirvarar við stjórnarfrumvörp í þinglegri meðferð. Ég hef ekki áhyggjur af því að félagar mínir í Vinstri grænum muni ekki standa við þá vinnu sem þeir hafa lagt heilmikla vinnu í, ásamt Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum, að þessari heildarsýn sem kynnt var hér fyrir nokkrum vikum síðan.