154. löggjafarþing — 83. fundur,  11. mars 2024.

áætlanir um uppbygging húsnæðis.

[15:42]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Þetta er eitthvað svona með hérann og á skjaldbökuna, ákveðið kapphlaup. Nýtt húsnæðiskerfi er komið núna einhverjum sjö árum seinna, sjö árum eftir að skorturinn varð augljós. Þetta sem ég er að gagnrýna er að þrátt fyrir þá stöðu sem er í dag, að stjórnvöld hafi lofaði 1.000 auka íbúðum inn á markaðinn og lofað því einhvern veginn aftur vegna kjarasamninga — mér finnst ekki sanngjarnt að það sé talið sem hluti af þessum 80 milljarða pakka því að það er þegar búið að fjármagna þann hlut. Annaðhvort er upphæðin þar lægri eða það er verið að hrósa sér af sama hlutnum tvisvar. Mér finnst það bara ekkert vera sanngjörn framsetning gagnvart almenningi. Við verðum að gera dálítið betur og því langar mig til að spyrja hæstv. ráðherra, þar sem ríkisstjórnin byrjaði í rauninni á að auka rosalega í eftirspurnaraðgerðir, (Forseti hringir.) koma með ný lán og alls konar svoleiðis sem hjálpaði einmitt ekkert til við nýtt húsnæði sem vantaði og (Forseti hringir.) það hækkaði bara kostnað fólks og hækkaði verð á markaði: Hafa (Forseti hringir.) aðgerðir ríkisstjórnarinnar tekist? Hefur ríkisstjórnin náð markmiðum sínum hingað til?