154. löggjafarþing — 83. fundur,  11. mars 2024.

skýrsla um Hvassahraunsflugvöll.

[15:49]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Herra forseti. Já, ég vænti þess bara að fá gott andsvar varðandi þessar byggingar sem er verið að fara að byggja í mikilli nálægð við flugvöllinn. Það er búið að byggja mjög mikið á undanförnum árum og væntingar um að það verði miklu meira byggt í mikilli nálægð við flugvöllinn. Þess vegna hugsar maður um samkomulagið sem var gert 2019 og 5. gr. þar um rekstrarhæfni vallarins, að verja hana í þessu samhengi.

Svo vil ég rétt koma í lokin inn á loftferðalögin sem við samþykktum hér í þinginu fyrir tveimur árum þar sem voru klár ákvæði og nokkrar greinar sem tengdust því hvernig væri hægt að verja með skilmerkilegri hætti flugvelli landsins sem hefur kannski verið notað að einhverju leyti varðandi aðra innviði. En ég held að það sé öllum ljóst að hér er um gríðarlega mikilvæga innviði (Forseti hringir.) að ræða. Er ekki rétt að nýta líka það sem stendur í loftferðalögunum í þessu samhengi?