Fíknisjúkdómurinn.
Virðulegur forseti. Fíknisjúkdómar eru algjört helvíti. Fíknisjúkdómur er ekki bara helvíti fyrir sjúklinginn sjálfan sem þjáist af honum heldur fyrir aðstandendur og fjölskylduna alla. En þetta er flókinn sjúkdómur og þetta er ekkert séríslenskt fyrirbrigði. Það glíma auðvitað allar þjóðir við fíknisjúkdóma og því miður virðumst við sjá aukningu hvað það varðar. Þess vegna held ég að sé mikilvægt að við nálgumst þetta með heildstæðri stefnu og nálgun og ég fagna því sem hæstv. ráðherra kom inn á hérna áðan því að ég vil meina það að allt of oft í þessum sal höfum við talið að það væri hægt að leysa það vandamál sem fíknisjúkdómar vissulega eru með því að setja nokkur hundruð milljónir í viðbót í SÁÁ. Með fullri virðingu fyrir þeirri góðu stofnun og því starfi sem þar er unnið þá getum við ekki nálgast jafn stóran og alvarlegan sjúkdóm með slíkri nálgun. Það verður að vera heildstæð nálgun á það hvernig við glímum við þennan sjúkdóm og að sjálfsögðu verða bæði Landspítalinn svo og SÁÁ og fleiri aðilar að aðstoða okkur við það. Það þarf að sjálfsögðu að nýta gagnreyndar aðferðir og horfa til þeirra vísinda og þekkingar sem til er um sjúkdóminn. En ég vil líka beina því til ráðherra hvort ekki væri eðlilegt að við opnum á það að Sjúkratryggingar greiði líka fyrir meðferð við fíknisjúkdómum erlendis. Með því myndi aukast ákveðin samkeppni og mögulega ýta undir nýsköpun og aukna þjónustu hér á landi. En það er þannig fyrir suma að það hentar ekki að sækja meðferð á Íslandi með félögunum sem hafa verið í sömu neyslunni og vandamálin koma aftur þegar þú kemur út.
Ég beini því til ráðherra að skoða þann möguleika og svo þurfum við að sjálfsögðu að horfa á samspilið við endurhæfinguna og langtímanálgunina og þar eins og í hinu verðum við að hafa heildstæða nálgun. (Forseti hringir.) Við eigum að nýta okkur þau góðu félagasamtök sem eru að vinna vel í þeim efnum en við getum ekki treyst þeim einhliða fyrir þessu risastóra verkefni.