154. löggjafarþing — 83. fundur,  11. mars 2024.

Fíknisjúkdómurinn.

[16:09]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Ég velti því fyrir mér hversu gagnlegt það er að nálgast fíkn sem sjúkdóm. Sjúkdómsmódelið er ekki að skila árangursríkum meðferðum fyrir alla enda er líffræðilegur hluti fíknarinnar einungis lítill hluti af vandanum. Fíkn er flókið menningarlegt, félagslegt, sálfræðilegt og líffræðilegt ástand. Á meðan það er vissulega sameiginlegt álit sérfræðinga að langtímaáfengis- og vímuefnanotkun valdi breytingum í heila eru alls ekki allir sammála um að þessar taugalíffræðilegu breytingar leiði af sér að áfengis- og vímuefnavandi sé heilasjúkdómur. Allar markmiðsbundnar athafnir sem við verðum gagntekinn af leiða af sér breytingar á taugabrautum heilans og jafnvel þegar við göngum í gegnum mjög tilfinningarík tímabil. Eins og þegar við verðum ástfangin þá hefur það þessar afleiðingar, þessar breytingar á heilanum, en hvergi er ást skilgreind sem heilasjúkdómur.

Fíkn er drifin áfram af áföllum og vanlíðan. Áföll eru einstaklingsmiðuð viðbrögð við erfiðum atburðum eða atvikum og geta tengst streitu, skömm, að missa tengsl við ástvin eða að missa starf, að upplifa félagslega upplausn, ofbeldi eða áþján. Áföll geti jafnvel orðið við skort á tengslamyndun á fyrstu árum ævinnar.

Rannsóknir hafa sýnt að breytingar í heila geta gengið til baka hjá þeim einstaklingum sem hafa hætt hættulegri neyslu. Taugabrautir breytast með nýrri hegðun. En að stuðla að nýrri hegðun felur í sér að bjóða upp á meðferðarúrræði sem hefur áfallamiðaða nálgun í kjarna meðferðarinnar og tekur einnig á þeim flóknu félagslegu þáttum sem liggja að baki neyslunni. Það skiptir líka öllu að vímuefnastefnan vinni ekki gegn batamöguleika fólks sem á við vímuefnavanda að stríða eins og hún gerir í dag. Eins og Carl Hart taugasérfræðingur sagði, sem hefur mikið rannsakað orsakir fíknar: Vímuefni eru ekki vandamálið heldur ómannúðleg vímuefnastefna og jaðarsetningin sem hún veldur.

Forseti. Fíkn er ekki sjúkdómur. Fíkn er einkenni, einkenni sálfélagslegrar stöðu fólks, einkenni fordóma, einkenni vondrar vímuefnastefnu. En fíkn á líka rætur að rekja í mun dýpra og flóknara vandamál sem er samfélag sem upphefur neyslu og yfirborðskennda ytri umbun framyfir innri skoðun, djúpa tengslamyndun og leit að tilgangi. Fíkn er að því leytinu til, frekar skiljanlega og kannski eðlilega, viðbrögð við sjúku samfélagi.