Fíknisjúkdómurinn.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir þessa umræðu, hv. þm. Ingu Sæland og hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir að taka hér þátt og öðrum þingmönnum að sjálfsögðu líka. Mjög mikilvægt að ræða þetta mál hér í þessum sal, einfaldlega út frá þeirri staðreynd að þetta er einn mesti heilbrigðisvandi sem vestræn samfélög standa frammi fyrir og Ísland er engin undantekning þar. Þetta er heilbrigðisvandi. Þetta þýðir að þeir sem búa við fíknivanda, eru með fíknivanda þurfa að leita á náðir heilbrigðiskerfisins og þeir eiga rétt á því að leita á náðir heilbrigðiskerfisins vegna þess að þetta er sjúkdómur og við sinnum veiku fólki í þessu samfélagi. Við erum hins vegar að bregðast þessum hópi eins og staðan er núna. Meðferðarúrræðin okkar eru ekki keyrð á fullum afköstum. Það er ekki verið að keyra Vog á fullum afköstum núna vegna þess að fjármunir sem fara til SÁÁ fara að stórum hluta í að niðurgreiða viðhaldsmeðferð vegna ópíóíðafíknar. SÁÁ er að þjónusta rúmlega 300 einstaklinga en fær greitt frá ríkinu fyrir tæplega 100.
Ég ætla að leggja fram tillögu hér á Alþingi á morgun um það að ríkisvaldið skaffi þessar 100 milljónir sem vantar upp á til þess að SÁÁ geti sinnt þeim hópi sem þarf á þessari viðhaldsmeðferð vegna ópíóíðafíknar að halda án þess — án þess — að það keyri niður aðra mikilvæga þjónustu sem nýtist öðrum þeim sem með þennan fíknisjúkdóm eru. Þetta skiptir gríðarlega miklu máli. Þessar 100 milljónir sem upp á vantar gegna þá tvíþættum tilgangi, annars vegar að hjálpa þeim betur sem eru með ópíóíðafíkn og þær gera það að verkum að það verður til meira fjármagn í sjálft meðferðarstarfið á Vogi og hjá SÁÁ.
Ég ætla síðan í minni seinni ræðu að koma betur inn á sjúkdóminn í heild sinni. En ekki ætla ég að taka undir það sem hér hefur verið sagt, að þetta sé ekki sjúkdómur, því að sjúkdómur er þetta svo sannarlega.