154. löggjafarþing — 83. fundur,  11. mars 2024.

Fíknisjúkdómurinn.

[16:23]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég fagna framtaki málshefjanda, hv. þm. Ingu Sæland, um þetta gríðarlega mikilvæga mál. Nálgunin er til fyrirmyndar enda ættu forvarnir annars vegar og heilbrigðisþjónustu hins vegar að vera í algjörum forgrunni í þessum málaflokki. Við erum sem betur fer langsamlega flest sammála um að fíkniefnavandinn sé heilbrigðisvandamál, sjúkdómur, og að viðbrögðin og umgjörðin ættu að vera eftir því. Þrátt fyrir fjölmörg jákvæð skref hæstv. heilbrigðisráðherra, sem virðist hafa góðan skilning á viðfangsefninu, er staðan hreint ekki góð. Fíknisjúkdómar eru lífshættulegir og allt of margir fá ekki lífsnauðsynlega þjónustu í heilbrigðiskerfinu. Það er með þessa sérstöðu fólks sem glímir við vímuefnavanda, eins og hv. þm. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir kom stuttlega inn á áðan, að það er bara þessi ákveðni gluggi sem getur opnast fyrir þetta fólk til að sækja sér þjónustu og þá verður hreinlega að vera til staðar og opið fyrir heilbrigðisþjónustu fyrir þennan hóp. Ég hef nefnt þetta áður og geri það aftur að það þarf ekki annað en að fletta minningarsíðum Morgunblaðsins til að sjá hversu grafalvarleg staðan er. Fíknisjúkdómar herja á ungt fólk og þessar síður bera þess merki. En af hverju eru ekki meiri viðbrögð við þessari grafalvarlegu stöðu, eins og hv. þm. Sigmar Guðmundsson kom hérna inn á áðan? Af hverju er ekki þjóðarátak, landssöfnun og allt þar á milli? Ég vil meina að það sé vegna fordóma sem enn grassera í samfélaginu, neikvæðra viðhorfa.

Virðulegi forseti. Þessi staða sem við ræðum hér, áhyggjurnar sem hv. málshefjandi hefur af stöðunni, er í algjörri mótsögn við þá mikilvægu viðhorfsbreytingu sem hefur orðið í samfélaginu í þá átt að fíknisjúkdómar eigi að vera meðhöndlaðir sem slíkir innan heilbrigðiskerfisins. Ég kalla því eftir því að hæstv. ráðherra haldi áfram á þeirri vegferð sem hann hefur verið á og boðað en gefi hraustlega í og forgangsraði fólki sem glímir við vímuefnavanda. Það er hreinlega lífsnauðsynlegt. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)