Fíknisjúkdómurinn.
Forseti. Það hefur sýnt sig þegar kemur að baráttunni við vímuefnavandann að bönn og refsingar hafa lítil sem engin áhrif. Þau koma ekki í veg fyrir fikt og ótrúlegt en satt, þá koma þau ekki í veg fyrir að fólk þrói með sér fíknivanda. Hvers vegna ekki? Jú, vegna þess að þau beinast að afleiðingum vandans í stað þess og algerlega án þess að takast á við orsakirnar. Við getum ekki komið í veg fyrir vímuefnanotkun en með réttum aðgerðum getum við komið í veg fyrir alvarlegar afleiðingar hennar, dregið úr skaðanum og ekki síst komið í veg fyrir dauðsföll. Það hefur lengi verið viðtekið viðhorf hér á landi og víðar að til að fá aðstoð við fíknivanda þurfi fólk fyrst að hætta neyslu. En það er nákvæmlega eins og að segja að þú þurfir að vera hraustur til að fá heilbrigðisaðstoð. Sem betur fer bendir allt til þess að það hafi orðið viðhorfsbreyting meðal heilbrigðisstarfsfólks og þorra almennings hér á landi en hugarfarsbreytingin virðist ekki hafa náð upp í fílabeinsturn ríkisstjórnarinnar og er nauðsynlegra breytinga því enn að bíða þegar kemur að löggjöf og þeim úrræðum sem tryggð eru. Og enn refsum við fólki fyrir vandann sem það er í.
Í þessu úrræðaleysi hafa orðið til óformleg og umdeild úrræði þar sem læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk finnur sig sífellt í þeirri stöðu að þurfa að velja á milli þess að svíkja Hippókratesareiðinn og brjóta lög. Heilbrigðisstarfsfólk hefur ítrekað kallað eftir faglegu verklagi og skýrari reglum í tengslum við skaðaminnkun hér á landi og hafa lyfjafræðingar m.a. bent á skaðaminnkandi lyfjameðferðir sem tíðkast í öðrum löndum og hafa tíðkast í áratugi. Á meðan ríkisstjórnin hugsar málið og skipar hvern starfshópinn á fætur öðrum til að finna upp hjólið er unga fólkið okkar að deyja í hrönnum. En, forseti, úrræðin eru til. Við þurfum ekki að finna upp hjólið.