154. löggjafarþing — 83. fundur,  11. mars 2024.

Fíknisjúkdómurinn.

[16:33]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. heilbrigðisráðherra og öllum þeim hv. þingmönnum sem hafa tekið þátt í þessari þörfu umræðu. Samantekið í mínum huga þá liggur það náttúrlega enn þá ljóst fyrir að hér er um gríðarlega fordóma að ræða gagnvart fíknisjúkdómnum sem slíkum. Ef hann væri viðurkenndur að fullu inni í heilbrigðiskerfinu væru ekki 700 einstaklingar að bíða á biðlista eftir nauðsynlegri hjálp inn á Sjúkrahúsið Vog. Þá væri Sjúkrahúsið Vogur rekið á öllum þeim dampi sem mögulegur væri. Þá værum við að forgangsraða fjármunum mun meira fyrir sjúklingana sem glíma við þennan dauðans alvöru sjúkdóm. Þá værum við að taka utan um einstaklingana þegar þau væru að koma út úr meðferð og við fyndum þeim viðhlítandi úrræði og aðstoð. Við værum í rauninni á allt öðrum stað. Við skulum átta okkur á því að sú þróun sem hefur orðið í samfélaginu í dag er mannanna verk. Það er í höndum stjórnvalda hverju sinni að taka utan um samfélagið eins og best er og best verður á kosið. Þessi þróun sem hefur orðið hér og nú, þar sem fjöldi einstaklinga er að deyja á bið eftir heilbrigðisþjónustu, er í rauninni — ég á varla eitt einasta orð yfir það að ég skuli vera að segja þetta. Þetta er sárara en tárum taki. Og að ætla að halda því fram eins og einn ákveðinn hv. þingmaður að það sé kannski einhver ákveðinn hópur í samfélaginu sem sérstaklega verður fyrir vanda, vanda sem viðkomandi hv. þingmaður, Halldóra Mogensen, segir að sé ekki sjúkdómur. Þá vil ég bara segja það hér og nú: Fíknisjúkdómurinn spyr hvorki um stétt né stöðu frekar en ástin sem hv. þm. Halldóra Mogensen vísaði til. Það þarf ekki að hafa orðið fyrir einhverjum áföllum eða vanda eða vera fátækur til að sitja uppi með fíknisjúkdóminn. Fíknisjúkdómurinn er einn erfiðasti og alvarlegasti sjúkdómurinn sem íslenskt samfélag býr við í dag. (Forseti hringir.) Af hans völdum eru að deyja um 100 einstaklingar árlega og þar af ríflega helmingurinn algerlega ótímabærum dauða.