154. löggjafarþing — 84. fundur,  11. mars 2024.

gervigreind.

654. mál
[16:50]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að setja þetta mál á dagskrá, það skiptir máli. Það er ekki vafi á því að gervigreindin getur nýst okkur. Okkur hættir samt til að gera alltaf ráð fyrir að hún sé að vinna í þessu stærsta samhengi en ég held að við gætum strax farið að nýta hana hér á Íslandi. Gary Kasparov, heimsmeistari í skák, sagði einhvern tímann að besta tölva í heimi vinnur besta skákmann í heimi en sæmileg skáktölva og besti skákmaður í heimi vinna alltaf allar aðrar tölvur. Mér verður hugsað út á land þar sem við höfum oft lækna sem eru einir og þurfa að glíma við ótrúlega erfiðar aðstæður í fámenninu. Með aðstoð gervigreindar og tölva geta þeir einmitt fundið meira öryggi, greint hluti sem þeir eiga enga möguleika á annars þannig að ég held að við ættum strax að byrja að þreifa okkur áfram með að nýta slíka tækni svona á litlum skala áður en þetta stóra byrjar.