154. löggjafarþing — 84. fundur,  11. mars 2024.

frjósemisaðgerðir.

233. mál
[17:08]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Frjósemisaðgerðir eru gríðarlega mikilvægt mál hér á Íslandi. Eins og kom fram í máli málshefjanda þá á hver kona 1,6 barn að meðaltali og það er augljóst mál að okkur fer fækkandi og mun fara fækkandi á næstu árum. Við erum fámenn þjóð og það er gríðarlega mikilvægt að við stöndum vörð um mannfjölda okkar eins og hann er í dag, 400.000 manns, og helst að okkur fari fjölgandi.

Íslendingar hafa alltaf verið taldir mjög ung þjóð og ég hef heyrt oftar en einu sinni í fjárlaganefnd að við séum ung þjóð, að það sé skýringin fyrir því að við setjum ekki meira til heilbrigðismála af þjóðarframleiðslu. En það er gríðarlega mikilvægt að við styðjum við bakið á þeim konum og pörum sem vilja fara í frjósemisaðgerðir og hér er bara um hreina fjárfestingu að ræða hreinlega. Ég tel að ríkið eigi að horfa til þess að hér sé um fjárfestingu að ræða til framtíðar, að koma í veg fyrir að okkur fjölgi ekki. En þetta tengist stærra samhengi sem lýtur að því að konur eignast börn seinna á lífsleiðinni og þá er mikilvægt að styðja við að konur sem það vilja geti eignast börn enn þá fyrr á lífsleiðinni. En þetta er þróun sem er alls staðar á Vesturlöndum.