frjósemisaðgerðir.
Hæstv. forseti. Ég verð byrja á því að ítreka þakkir til hv. þingmanns um að taka þetta mál hér upp og þeim sem komu inn í umræðuna með athugasemdir. Ég tek undir með hv. þingmanni, auðvitað er alltaf æskilegt að það sé val. Þannig hefur þetta þróast hjá okkur, að þessi þjónusta er í boði þessa fyrirtækis. Við horfum til heilbrigðisstefnu þar sem við viljum veita aðgengi að heilbrigðisþjónustu óháð efnahag og óháð búsetu. Ég get til að mynda sagt það hér að áhersla sú sem ég lagði á að semja við sérgreinalækna byggði fyrst og fremst á heilbrigðisstefnu og því að veita aðgengi óháð efnahag. Það er kjarninn í okkar heilbrigðisstefnu og við eigum alltaf að vernda og verja.
Ég tek undir að það er mikilvægt að hér sé gott eftirlit og að við byggjum upp faglega þjónustu. Við getum jafnframt örugglega gert betur þegar kemur að auknum stuðningi á þessu sviði. Ég vil þakka þann áhuga og þann stuðning sem hefur verið meira áberandi gagnvart þessum meðferðum núna hér seinni misserin, eins og þessi fyrirspurn gefur til kynna. Af því að ég fór hér yfir það hvernig endurgreiðslum er háttað þá er þetta auðvitað erfitt ferli. Við erum að greiða lítið í fyrstu atrennu og svo meira í næstu skipti. Þetta getum við allt endurskoðuð og ættum að gera það. Við höfum líka verið að gera ýmislegt til að liðka til á þessu sviði. En ég vil bara þakka umræðuna, ég held ég hafi svarað öllum spurningunum sem hér komu fram. En svo að ég ljúki því að svara þá var ekki hægt að gefa upp nákvæmar tölur um hversu mörgum hefur verið neitað um meðferð.