kerfi til að skrá beitingu nauðungar.
Forseti. Fyrir réttum tveimur árum síðan beindi hv. þm. Eva Sjöfn Helgadóttir fyrirspurn til hæstv. heilbrigðisráðherra, sem var svohljóðandi, með leyfi forseta:
„1. Hversu mörg þeirra sem hafa verið svipt lögræði undanfarin tíu ár hafa á þeim tíma verið í þvingaðri lyfjagjöf?
2. Hver er dvalartími lögræðissviptra á lokuðum geðdeildum? […]
3. Hversu mörg ótímabær dauðsföll hafa verið meðal lögræðissviptra undanfarin tíu ár?“
Svar hæstv. heilbrigðisráðherra var svohljóðandi, með leyfi forseta:
„Samræmd skráning í rafrænni sjúkraskrá á beitingu nauðungar eða þvingunarúrræða er ekki til staðar á Íslandi og því eru umbeðnar tölfræðiupplýsingar ekki aðgengilegar að svo stöddu. Í apríl 2021 óskaði heilbrigðisráðuneyti eftir því að embætti landlæknis hæfi vinnu við þróun og innleiðingu kerfis eða viðmóts fyrir heilbrigðisstarfsfólk til að skrá beitingu nauðungar. Á vegum embættis landlæknis er unnið að því að skilgreina samræmda skráningu þvingunarúrræða í rafræna sjúkraskrá og síðan þarf að breyta rafrænum sjúkraskrárkerfum þannig að samræmd skráning sé framkvæmanleg, sem aftur mun tryggja betri yfirsýn og möguleika á tölfræðiúttektum sem þessum.“
Í ljósi þessa ákvað ég að beina fyrirspurn til hæstv. heilbrigðisráðherra um stöðuna á vinnu við þróun og innleiðingu kerfis af þessu tagi. Í eftirliti umboðsmanns Alþingis með meðferð þeirra sem eru frelsissviptir á Íslandi hafa einnig verið gerðar athugasemdir við skráningu atvika og annars í þessum málum og er þetta því mjög mikilvægt.