endurskoðun laga um almannavarnir.
Frú forseti. Öryggi og velferð þjóðarinnar er ávallt í forgangi og almannavarnir eru lykilatriði í því samhengi. Reynslan hefur kennt okkur mikilvægi þess að vera vel undirbúin fyrir óvæntar áskoranir, hvort sem þær eru af náttúrulegum eða tæknilegum toga. Það er brýnt að við endurskoðum lög um almannavarnir með þetta í huga en slík endurskoðun verður að einkennast af víðtæku samráði. Allir hagsmunaaðilar, frá björgunarsveitum til heilbrigðisstarfsfólks og frá sveitarfélögum til almennings, þurfa að hafa rödd í þessu ferli. Aðeins með því að sameina þekkingu og reynslu þessara aðila getum við tryggt að ný lög um almannavarnir verði bæði viðeigandi og sveigjanleg. Margir þessara aðila hafa komið að máli við mig því að ekki virðist vera um víðtækt samráð að ræða.
Lærdómur af aðgerðum undanfarinna ára er dýrmætur. Hann sýnir okkur bæði hvar við höfum staðið okkur vel og hvar þörf er á úrbótum. Þessi reynsla er grundvöllurinn að því að byggja upp enn öflugri og skilvirkari almannavarnir. Því miður er útlit fyrir að það muni reyna enn meira á almannavarnakerfið á næstu árum og áratugum, bæði sökum aukinnar eldgosavirkni en ekki síður vegna loftslagsbreytinga. Við stöndum frammi fyrir tækifæri til að endurskilgreina og styrkja almannavarnakerfi landsins. Það er á okkar ábyrgð að grípa þetta tækifæri og nýta það til fulls til að skapa öruggara umhverfi fyrir komandi kynslóðir.
Því spyr ég hæstv. dómsmálaráðherra: Hvað líður vinnu við heildarendurskoðun laga um almannavarnir, nr. 82/2008? Hver verður aðkoma Alþingis að þeirri heildarendurskoðun? Hver verður aðkoma viðbragðsaðila að þeirri heildarendurskoðun og hvenær telur ráðherra að drög að nýju frumvarpi verði kynnt í samráðsgátt stjórnvalda?