endurskoðun laga um almannavarnir.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka bæði fyrirspurnina en ekki síður ráðherra fyrir að boða hér mjög mikilvæga löggjöf einmitt um almannavarnir. Það skiptir gríðarlega miklu máli. Ég veit að ráðherra er að taka heildstætt á þessu en hvet líka ráðuneytið til að hlusta á reynslubolta eins og hv. fyrirspyrjanda og fleiri sem koma innan úr geiranum.
Ég vil líka nota tækifærið til að undirstrika mikilvægi alþjóðasamstarfs. Já, ég mun tala hér um ESB, m.a. það hvernig Evrópusambandið hefur brugðist við og verið með sterka innkomu á þeim svæðum sem hafa orðið fyrir náttúruhremmingum innan Evrópusambandsins. En ég vil líka taka undir það sem hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir sagði áðan um mikilvægi Norðurlandasamstarfsins. Það skiptir okkur gríðarlega miklu máli og það verðum við að rækta alveg eins og allt annað alþjóðasamstarf. Við finnum það að náttúran er að breytast en við finnum það líka að heimurinn er að verða meira meðvitaður um að samstaðan kemur okkur lengra. Það er gott að við getum miðlað þekkingu út á við en það er líka gott að fá stuðning hingað heim frá þeim sérfróðu aðilum sem að utan koma. (Forseti hringir.) Með þessu innleggi mínu er ég að þakka fyrir endurskoðun á framlagningu í haust á frumvarpi en líka undirstrika mikilvægi alþjóðasamstarfs.