154. löggjafarþing — 84. fundur,  11. mars 2024.

endurskoðun laga um almannavarnir.

687. mál
[18:08]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Gísli Rafn Ólafsson) (P):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og ég vona að við höldum áfram að sjá opið og gott samráð og það sé vel hlustað á þær athugasemdir sem koma, sérstaklega frá viðbragðsaðilum. Það er einnig mikilvægt, eins og hæstv. ráðherra nefndi, að við horfum til þess að byggja upp og auka enn okkar áfallaþol og að við séum líka að vinna í forvörnum og viðbragðsáætlunum og öðru, nokkuð sem er því miður ekki tími eða bjargir til að gera akkúrat núna vegna þess að það eru allir á kafi í viðbragði.

Mig langar að koma aðeins inn á það sem hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir og hv. þm. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir nefndu sem var alþjóðlegt samstarf. Við erum hluti af almannavarnasamstarfi Evrópu. Það er ekki bara Evrópusambandið heldur eru samtals 37 ríki í því samstarfi. Við gerðum það nú í nóvembermánuði í fyrsta skipti í 50 ár að biðja um aðstoð þaðan frá og ég var reyndar hluti af því að vinna það þegar ég tók af mér pólitíska hattinn og setti á mig björgunarsveitarhattinn. En þetta evrópska samstarf er mikilvægt og við eigum að vera óhrædd við að biðja um aðstoð. Það er ekki merki um að við séum með einhvern veikleika hér heima heldur að við vitum að þekking, reynsla og búnaður er til alls staðar á evrópska svæðinu. Við eigum frekar að biðja um aðstoð oftar heldur en sjaldnar.