154. löggjafarþing — 84. fundur,  11. mars 2024.

endurskoðun laga um almannavarnir.

687. mál
[18:10]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég vil ítreka þakkir mínar til hv. þingmanns varðandi þessa fyrirspurn. Sömuleiðis vil ég ítreka að það er mikið samstarf, eins og hv. þingmaður nefndi hér í máli sínu, bæði samstarf á sviði Norðurlandanna sem og ríkja Evrópu. Við tökum þátt í margvíslegum ESB-verkefnum hvað þetta varðar en það er ekki einhliða, það er ekki í aðra áttina eða einstefna vegna þess að það gleymist stundum, eins og hv. þingmaður þekkir á eigin skinni, að við höfum heilmikið fram að færa hvað þetta varðar. Hér eigum við heilan her viðbragðsaðila, björgunarsveitanna. Ég held að þeir séu hátt í 5.000, sjálfboðaliðarnir, sem eru tilbúnir til þess að hlaupa frá sínum verkum hvenær sem er sólarhringsins þegar neyðin kallar. Sömuleiðis eru stórir hópar fólks sem eru tilbúnir til að fara héðan með stuttum fyrirvara þegar kallað er eftir aðstoð annarra ríkja og það þekkjum við vel eins og t.d. að rústabjörgunarsveit sem fór til Haítí, ef ég fer rétt með, sem skipti mjög miklu máli.

Ég vil fá að hrósa almannavörnum og öllum þeim viðbragðsaðilum sem starfa hér í landinu og eru, eins og ég sagði, tilbúnir dag og nótt alla daga ársins til að fara í hvaða vá sem er, í hvaða veðri sem er, til að aðstoða okkur hin.